fbpx
Laugardagur 14.desember 2024
Fókus

Matthew Perry sér eftir því sem hann sagði um Keanu Reeves

Fókus
Mánudaginn 24. apríl 2023 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríski leikarinn Matthew Perry segist hafa gengið of langt í ævisögu sinni þegar hann fjallaði um kollega sinn, leikarann Keanu Reeves.

Á tveimur stöðum í ævisögu kappans kom nafn Reeves fyrir en í miður skemmtilegu samhengi.

„Það virðist alltaf vera þannig að hæfileikaríka fólkið deyr fyrst,“ sagði hann og nefndi leikarana River Phoenix og Heath Ledger sem dóu ungir eftir baráttu við fíknisjúkdóm. „En svo gengur Keanu Reeves enn á meðal okkar,“ sagði hann í bók sinni.

Á öðrum stað í bókinni ræddi hann dauða gamanleikarans Chris Farley og hvernig hann brást við þegar hann frétti af andláti hans. „Ég kýldi í gegnum veginn á búningsherbergi Jennifer Aniston,“ sagði hann og tók aftur fram að Keanu Reeves væri á lífi.

Matthew Perry var á meðal framsögumanna á Los Angeles Times Festival of Books á laugardag þar sem hann sagði að þessi ummæli yrðu fjarlægð úr næstu prentun ævisögunnar.

„Það sem ég sagði var heimskulegt og kvikindislegt. Ég hef beðið hann opinberlega afsökunar og næsta prentun verður ekki með nafninu hans,“ sagði hann en tók fram að hann hefði ekki beðið Reeves afsökunar í eigin persónu.

„En ef ég hitti hann mun ég gera það. Þetta var heimskulegt.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Fór að gráta eftir að hafa stundað kynlíf með 100 karlmönnum

Fór að gráta eftir að hafa stundað kynlíf með 100 karlmönnum
Fókus
Fyrir 2 dögum

Vandræði í paradís? – Hafdís og Kleini hafa eytt öllum myndum af hvort öðru á Instagram

Vandræði í paradís? – Hafdís og Kleini hafa eytt öllum myndum af hvort öðru á Instagram