Stacia Datskovska er nemandi við háskólann í New York í blaðamennsku og alþjóðasamskiptum. Í námi hennar var skylda að taka eina önn í skiptinám og ákvað Stacia að velja Ítalíu og skrifaði svo um reynslu sína í pistli sem hún fékk birtan hjá Insider. Líklega hefur Staciu ekki órað fyrir viðbrögðunum sem þessi litli pistill átti eftir að fá, en hann hefur vakið gífurlega athygli og hefur miðillinn Insider fengið yfir sig harða gagnrýni fyrir að hafa birt pistil sem þennan sem fyrirséð var að myndi kalla hatur og netníð yfir höfundinn.
Staciu fannst vægast sagt leiðinlegt í skiptinámi sínu. Hún hafi þurft að deila íbúð með sjö öðrum stúlkum sem einnig voru skiptinemar frá Ameríku. Fannst henni það fyrst spennandi tilhugsun.
„Ég ímyndaði mér skemmtileg pálínuboð með herbergisfélögunum, sumarást með manneskjum sem kölluðu mig „bella“ gelato ís sem lak niður fingur mínar í hitanum og náttúruvín sem áttu einstaklega vel við góðar samræður og enn betri prosciutto skinku.“
Raunin hafi þó verið önnur. Herbergisfélagarnir hafi varið frítíma sínum í að ferðast til annarra Evrópuríkja, enda ódýrir flugmiðar í boði. Hún hafi því mikið verið ein og fór það í taugarnar á henni að enginn í skiptináminu væri með sömu áherslur og hún. Henni þóttu Ítalirnir líka dónalegir. Hún hafi búist við því að henni yrði tekið opnum örmum en fremur upplifði hún að vera litin hornauga og að Ítalir væru almennt lítið hrifnir af skiptinemum.
Hún hafi líka svekkt sig á því að lífið heima í New York héldi áfram án hennar og fannst henni tíma sínum sóað á Ítalíu.
„Allt þetta ætti þó ekki að ráða nemendum frá því að fara til Flórens. Tilfinningar mínar lýsa ekki reynslu allra háskólanema, en hins vegar get ég ekki verið sú eina sem fannst skiptinám erlendis vera martröð.“
Segja má að greinin hafi vakið hörð viðbrögð. Var Staica gagnrýnd fyrir forréttindablindu. Ekki sé á færi allra að fara út í skiptinám og í stað þess að vera þakklát hafi hún greinilega fengið menningarsjokk að komast að því að Ítalía sé ekki eins og landinu sé lýst í amerískum bíómyndum.
Finding out Florence is not New York and Europeans are not Americans must have been brutal. https://t.co/4GZJEruDVB
— Sabina Ciofu (@SabinaCiofu) March 14, 2023
american goes to italy and finds out it’s a real country not her personal aesthetic playground https://t.co/kB6aH0rXfk
— alice needs international dates (@ivysiIlicit) March 15, 2023
That this broad has the gall to call *Italians* rude when she literally expects everyone around her to LARP her up a Chick Lit fantasy is *galling.* https://t.co/0FzBXRPZcb
— Robyn Pennacchia (@RobynElyse) March 14, 2023
Aðrir bentu á að hér hefði Insider klárlega ritskoðað greinina og klippt hana saman með óheppilegum hætti. Greinin hefði aldrei átt að fara í birtingu með þessum hætti enda væri fyrirséð að hún myndi kalla hatur yfir Staciu, sem hafi líklega ekki sjálf áttað sig á því hvernig greininni yrði tekið. Þarna hafi Insider gerst sekur um að fórna Staciu fyrir smellina.
publishing this is malpractice https://t.co/iJqjEgvjqp
— Dan Kois (@dankois) March 14, 2023
This is a very stupid article but whenever I see this genre of ‘young person writing glibly about something’ in the wild, I just think of the editor exploiting that writer https://t.co/UqtMV5GWQr
— Mic Wright (@brokenbottleboy) March 15, 2023
Sometimes undergraduates need to be saved from themselves. This shouldn’t have been published. https://t.co/6NNQIVgPSy
— Anna Ivey (@AnnaIvey) March 14, 2023
Her: I want to write a piece about my privileged experience travelling to Italy and hating the people, culture, sights, and everything else. I also want the piece to stench with my overzealous sense of self-importance.
Insider’s editor: … I’m listening. https://t.co/TySwVXSVju— Pre-order Salma Makes a Home! Out May 9th! (@TheDannyRamadan) March 15, 2023
Firstly, there is no way any decent editor okayed this article.
Secondly, this is possibly one of the most self-absorbed pieces of nonsense that I’ve read in a very long while, where this person answers most of her questions herself with alarming speed.https://t.co/47qmKBLMm9
— Julien Hoez (@JulienHoez) March 15, 2023
1) yes, editor is exploitative
2) but how many page impressions will this now have?
3) almost guaranteed a follow up
op-edhttps://t.co/N8jwZJ1kgq— OJ Campbell (@olivverjames) March 15, 2023
Ein kona tók þó undir með Staciu. Amanda Knox skrifaði á Twitter: „Stúlka, hvað ertu að tala um? Það er frábært að læra erlendis.“
Fyrir þá sem ekki muna þá var Amanda Know skiptinemi á Ítalíu þegar hún var ranglega sakfelld fyrir að hafa myrt herbergisfélaga sinn, Meredith Kercher. Amanda varði næstum fjórum árum í ítölsku fangelsi þar til hún var sýknuð af Hæstarétt Ítalíu.
Amanda var tekin af lífi af fjölmiðlum á meðan mál hennar var fyrir dómstólum þar sem henni var lýst sem skrímsli.
„Ég var ekki saklaus þar til sekt var sönnuð. Ég var útsmogin, útúrdópuð hóra og það voru engin rök fyrir þessu uppnefni en það vakti ímyndunarafl fólksins,“ sagði hún í samtali við Guardian á sínum tíma. Hún hefur bent á að hinn raunverulegi morðingi hafi svo verið sakfelldur en varla þekki nokkur manneskja nafn hans, Rudy Guede. Enda hafi öll áhersla fjölmiðla verið á henni.
Girl, what are you talking about? Studying abroad is awesome!https://t.co/xlEgCKTzqg
— Amanda Knox (@amandaknox) March 15, 2023
Stacia virðist ekki hafa tjáð sig um viðbrögðin við grein hennar, en hún hefur þó læst bæði Twitter og Instagram aðgangi sínum, eftir að hafa þó reynt að bregðast við einhverju af því skæða netníði sem hefur verið beint í átt hennar undanfarna daga.