Emma Heming Willis, eiginkona leikarans Bruce Willis, hefur biðlað til papparassa ljósmyndara að hætta að vera ágengir í garð manns hennar.
Hún deildi myndbandi um helgina á Instagram þar sem hún sagði vekja þurfi athygli á heilabilun og þau áhrif sem hún hefur á þá sem við hana glíma sem og aðstandendur þeirra.
Hún rakti atvik þar sem ljósmyndarar reyndu að ná tali af manni hennar þegar þau brugðu sér út á almannafæri, sem þau gera orðið sjaldan. Þau ætluðu að hitta vini í kaffi bolla. Emma segir að það sé erfitt og streituvaldandi að koma Bruce út úr húsi og halda honum öruggum.
„Þessi skilaboð eru til ljósmyndara og myndabandsupptökumanna sem eru að reyna að ná þessum „exclusive“ myndum af manni mínum þegar hann er úti. Haldiði ykkur fjarri. Ég veit að þetta er vinnan ykkar en vinsamlegast haldið smá fjarlægð.“
Hún sagði aðila myndbandsupptökufólk eiga til að öskra að manni hennar frösum úr bíómyndum hans og heimta að hann svari því til hvernig honum líði.
„Gefið honum plássið sitt. Leyfið fjölskyldunni, eða hverjum sem er með honum þann daginn að koma honum frá stað A til staðs B með öruggum hætti.“
Hún beindi einnig spurningu til annarra aðstandenda heilabilaðra, hvort þeir hafi einhver ráð eða ábendingar sem gætu auðveldað henni að hugsa um mann sinn.
Það var á síðasta ári þegar fregnir bárust um að Bruce Willis glími við málstol. Nýlega kom fram að nú hafi málstolið þróast yfir í heilabilun í framheila.
Engin meðferð er til við sjúkdómnum og Emma hefur sagt að hún vonist til þess að athygli fjölmiðla á veikindum Bruce geti miðað að því að vekja athygli á sjúkdómnum sem rannsaka þurfi betur.
Líklega má rekja skilaboð Emmu til atviks sem átti sér stað nýlega í Kaliforníu þar sem myndir voru teknar af Bruce í göngu með vinum sínum, en ljósmyndirnar hafa verið harðlega gagnrýndar.
View this post on Instagram