Daniel Hardman, 30 ára gamall áhrifavaldur frá áströlsku borginni Brisbane, sem leggur helst áherslu á líkamsrækt, lenti í alvarlegu slysi þann 17. nóvember síðastliðinn í líkamsræktinni sinni. Hardman var að lyfta stöng með lóðum í hallandi bekk þegar stöngin féll á hann og kramdi hann.
Courier Mail segir að áhrifavaldurinn hafi hlotið mænuskaða af þessu en það mun hafa áhrif á líf hans til frambúðar. Í raun var slysið svo alvarlegt að aðrir gestir í líkamsræktinni þurftu að veita Hardman skyndihjálp á meðan beðið var eftir sjúkrabíl fyrir hann.
Hardman liggur enn á spítala, rúmum tveimur mánuðum síðar. Búið er að rannsaka slysið og komast að þeirri niðurstöðu að líkamsræktin hafi ekki gert neitt vitlaust og því verður ekki gripið til neinna aðgerða vegna málsins.
Áður en slysið varð hafði Hardman reglulega birt myndbönd á samfélagsmiðlunum YouTube, Instagram og TikTok. Í myndböndunum leyfði hann aðdáendum sínum að fylgjast með því hvernig hann losnaði við aukakílóin og bætti á sig vöðvum í staðinn.
„Þú ert stærsti óvinur sjálfs þíns í lífinu. Þegar þú ert búinn að sigra þig sem óvin þá geturðu sigrað allt,“ segir hann til að mynda í einu myndbandinu. „Ég er ekki fullkominn en nú kýs ég að lifa lífinu mínu í óþægindum til að ná markmiðunum mínum.“