fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fókus

Gagnrýnir Harry harðlega fyrir að deila sögu um typpið sitt og Díönu prinsessu

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 17. janúar 2023 11:59

Megyn Kelly og Harry Bretaprins. Myndir/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríska fjölmiðlakonan Megyn Kelly gagnrýnir Harry Bretaprins harðlega fyrir að að skrifa um kal sem hann fékk á typpið og að þegar hann hafi borið krem á það hafi honum liðið eins og móðir sín væri hjá honum.

Fyrir viku síðan gaf Harry út sjálfsævisöguna Spare og er óhætt að segja að hún hafi valdið töluverðum usla. Fjölmiðlar keppast við að fjalla um sögur úr bókinni, breska konungsfjölskyldan neitar að bregðast við staðhæfingum hans og er fólk enn að jafna sig á mörgu því sem kemur fram, þar sem prinsinn lætur allt flakka.

Hann segir meðal annars frá því þegar hann fékk kal á typpið á Norðurpólnum. Hann áttaði sig ekki á því fyrr en hann kom heim, þetta var sem betur fer ekki alvarlegt. Vinur hans ráðlagði honum að bera krem frá Elizabeth Arden á kalið, en Harry þekkti kremið þar sem móðir hans var vön að bera það á varir sínar.

„Mamma notaði þetta á varirnar, viltu að ég seti það á skaufann (e. todger) á mér?“ sagði Harry við vin sinn.

„Um leið og ég opnaði kremið var eins og mamma væri í herberginu með mér. Ég setti krem á fingurinn og bar það á, þarna niðri.“

Klippa úr hljóðbókinni, þar sem Harry les upp þennan hluta bókarinnar, hefur vakið mikla athygli á TikTok.

@bridgetenielle Harry WHY WAS THIS NECESSARY #spare #princeharry #princeharryspare #meganandharry #audiobook ♬ original sound – greatbritishmemes

Segir söguna of persónulega til að deila

Sjónvarpskonan Megyn Kelly gagnrýnir Harry fyrir að deila þessari sögu með heiminum.

„Þessi saga um skaufann er svo áhugaverð að því leytinu að hún sýnir að hann skortir alla reisn,“ sagði hún í hlaðvarpsþættinum The Megyn Kelly Show.

Hún sagði einnig að þessi saga hafi sýnt að „að svo mörg okkar“ hafi ranglega kennt Meghan Markle alfarið um það að hjónin hafi slitið sig frá konungsfjölskyldunni.

„Engin eðlileg manneskja, hvað þá karlmaður, myndi skrifa um þetta,“ sagði hún.

„Hvaða karlmaður myndi deila þessari sögu […] sumt er of persónulegt fyrir aðra að vita.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Harmsaga systkinanna Rakelar og Heimis – „Ég man eftir mömmu á þessum tíma, annað hvort öskrandi eða sofandi“

Harmsaga systkinanna Rakelar og Heimis – „Ég man eftir mömmu á þessum tíma, annað hvort öskrandi eða sofandi“
Fókus
Í gær

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hjónabandsráðgjafi segir þetta merkið um að sambandið sé búið

Hjónabandsráðgjafi segir þetta merkið um að sambandið sé búið
Fókus
Fyrir 2 dögum

Snorri vissi varla hvaðan á sig stóð veðrið þegar Sigmundur Davíð og Bergþór bönkuðu upp á

Snorri vissi varla hvaðan á sig stóð veðrið þegar Sigmundur Davíð og Bergþór bönkuðu upp á
Fókus
Fyrir 4 dögum

Bikinímynd Kim Kardashian að athlægi – Sérð þú af hverju?

Bikinímynd Kim Kardashian að athlægi – Sérð þú af hverju?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Það er eiginlega mannréttindabrot að neita sjúklingum á Íslandi um þetta“

„Það er eiginlega mannréttindabrot að neita sjúklingum á Íslandi um þetta“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Jenna Jameson að skilja – Braut mjög mikilvæga reglu sem eiginkonan setti fyrir hana

Jenna Jameson að skilja – Braut mjög mikilvæga reglu sem eiginkonan setti fyrir hana