fbpx
Föstudagur 13.desember 2024
Fókus

Kvikmyndatónlist kvenna í sviðsljósinu á einstökum viðburði í Bíó Paradís

Fókus
Mánudaginn 9. janúar 2023 14:35

Arngerður Árnadóttir, Eydís Eir Björnsdóttir & Inga Weisshappel.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Einstakur viðburður um kvikmyndatónlist verður haldinn í Bíó Paradís laugardaginn 14.janúar í samstarfi við Feminist Film Festival, Shesaid.so og Anima Productions.

Á viðburðinum verða m.a. sýnd atriði úr kvikmyndum Kristínar Jóhannesdóttur en hún sérvaldi nokkrar senur fyrir átta tónskáld sem hafa nú frumsamið nýja tónlist við senurnar. „Tónskáldin koma úr öllum áttum og eru með ólíkan bakgrunn svo það verður gaman að sjá afraksturinn,” segir Arngerður Árnadóttir en hún stendur á bakvið verkefnið ásamt Eydísi Eir Brynju- Björnsdóttur kvikmyndagerðarkonu. Í hópnum eru tónlistarkonur eins og Una Stef, Elísabet Ey og Arngerður sjálf.

Una Stef og Elísabet Ey.

Einnig verða samræður og pallborðsumræður með fagfólki innan kvikmynda- og tónlistarbransans bæði hér heima og erlendis.

Umsjónarkona tónlistarinnar í The Crown meðal gesta

Tónlistarstjórinn (e. music supervisor) Sue Crawshaw sem einna þekktust er fyrir starf sitt í sjónvarpsþáttaröðinni The Crown verður einn af gestunum ásamt Alicen Schneider sem einnig er tónlistarstjóri. Alicen er einnig framkvæmdastjóri Studio and Network og stofnandi hinnar víðfrægu tónlistarstjórnendadeildar innan NBC Universal og mun hún taka þátt í pallborðsumræðum.

„Í augnablikinu eru aðeins tveir starfandi tónlistarstjórar á Íslandi, þær Inga Magnes Weisshappel og Cheryl Kara en þær hafa verið ómetanlegur stuðningur þessa verkefnis. Við byrjuðum tvær og nú er búið að safnast í kringum okkur þvílíkar valkyrjur svo við erum bjartsýnar með framhaldið,“ segir Eydís.

„Markmiðið er að að skapa tengsl á milli kvikmyndatónskálda, kvikmyndagerðarfólks og umsjónarfólks kvikmyndatónlistar,“ segir Arngerður. „Og þannig skapa vettvang fyrir kvikmyndatónskáld til að kynna verk sín og auka sýnileika þeirra.

Viðburðurinn er kallaður Lokk en það er tekið úr fornnorrænu orði sem var notað um ákveðið hljóð. „Lokkið“ er framkvæmt með hárri röddu og þýðir söngur tákna og skilaboða. Þetta er hljóð sem lætur röddina heyrast langar vegalengdir. Þetta söngform er að finna víða um heim og er talið vera eitt af elstu tónlistarformunum svo það passar vel við markmið viðburðarins.

Arngerður Árnadóttir, Eydís Eir Björnsdóttir & Inga Weisshappel.

Tónlist og hljóðheimur skipta gríðarlega miklu máli í kvikmyndagerð. Einnig hefur áhugi sprottist fyrir íslenskum tónskáldum og erlend verkefni byrjuð að leita hingað. Það má áætla að sigur íslendings á Óskarnum fyrir frumsamda tónlist í kvikmynd hafi ýtt undir þann áhuga. Það er því mikilvægt fyrir konur og auðvitað önnur kyngervi sem þurfa ætíð að sanna sig aðeins meir en aðrir að fá skapandi rými til að spreyta sig og fá aukið sjálfstraust á þessum vettvangi.

Þú getur skoðað viðburðin hér.

Instagram síða þar sem hægt er að sjá allar konurnar á bakvið verkefnið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Vandræði í paradís? – Hafdís og Kleini hafa eytt öllum myndum af hvort öðru á Instagram

Vandræði í paradís? – Hafdís og Kleini hafa eytt öllum myndum af hvort öðru á Instagram
Fókus
Í gær

Selena Gomez trúlofuð

Selena Gomez trúlofuð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sagan af Kóngsa geimfara er ný barnabók eftir Laufeyju Arnardóttur

Sagan af Kóngsa geimfara er ný barnabók eftir Laufeyju Arnardóttur
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ragnar fékk áfall þegar vaktfélagi hans svipti sig lífi – „Hann bjargaði mörgum mannslífum, af hverju gat ég ekki bjargað hans?“

Ragnar fékk áfall þegar vaktfélagi hans svipti sig lífi – „Hann bjargaði mörgum mannslífum, af hverju gat ég ekki bjargað hans?“