Ofurfyrirsætan Emily Ratajkowski bjó til sundfatamerkið iNAMORATA árið 2017 en síðan þá hafa sundfötin verið nokkuð vinsæl. Svokölluð „iTSY BiTSY“ bikiní sundfatamerkisins eru áberandi í markaðssetningu merkisins en eins og nafnið gefur til kynna hylja þau ekki ýkja mikið af líkamanum.
Emily auglýsir sundfötin reglulega á Instagram-síðu sinni en tæplega 30 milljón manns fylgja henni þar. Nýjasta færsla hennar er einmitt eins konar auglýsing fyrir sundfötin en athyglisvert er þó að sundfötin eru hvergi sjáanleg í færslunni. Emily er ber að ofan á myndunum í færslunni og því myndu eflaust fáir tengja sundfötin við myndirnar í fyrstu.
Textinn við myndirnar er þó það sem gefur til kynna að um auglýsingu á sundfötunum er að ræða. Í textanum segir Emily einfaldlega að brúnkufarið sé í boði sundfatamerkisins.
Myndirnar má sjá hér fyrir neðan:
View this post on Instagram