Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson, sem aldrei er kallaður annað en Simmi Vill, virðist vera gengin út. Sú heppna er hin danska Julie Christensen, starfsmaður Hotel d’Angleterre í Kaupmannahöfn. Hún er stödd á Íslandi og birti Simmi tvær myndir af nýju kærustunni þar sem þau spókuðu sig við Geysi í Haukadal.
Það vakti athygli í síðustu viku þegar Hugi Halldórsson, meðstjórnandi hans Simma í hlaðvarpsþættinum 70 mínútur, ljóstraði upp leyndarmálinu um nýju kærustuna. Simmi vildi þó ekki ræða málið frekar í þættinum en hefur nú greinilega ákveðið að gera sambandið opinbert.