fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

„Kærastan mín getur ekki fengið fullnægingu – þannig mér finnst við ættum að fara í trekant“

Fókus
Föstudaginn 19. ágúst 2022 20:30

Skjáskot úr Zoolander. Myndin tengist greininni ekki beint.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég hef fundið fullkomna lausn við fullnægingarvanda kærustu minnar: Trekantur.“

Svona hefst bréf karlmanns til kynlífs- og sambandsráðgjafa The Sun, Dear Deidre.

„Ég held að ástæðan fyrir því að hún fær aldrei fullnægingu með mér er vegna þess að getnaðarlimur minn er of smár.“

Maðurinn tekur það skýrt fram að hann sé ekki „pínkulítill“ en „greinilega ekki nógu stór til að fullnægja henni almennilega.“

Maðurinn er 24 ára og kærasta hans 21 árs. Þau hafa verið saman í fjóra mánuði en eiga erfitt með að tala um kynlíf. Hann segir að hún sé feimin og vilji ekki ræða um kynlíf. „En ég hef það á tilfinningunni að hún hefur fengið fullnægingu áður,“ segir hann.

„En sama hversu lengi ég endist með henni, þá liggur hún þarna bara og lítur út fyrir að leiðast og vonast til að þessu ljúki bara. Þetta kemur í veg fyrir að ég njóti kynlífsins. Ég er ekki sjálfselskur gaur, ég vil fullnægja henni,“ segir hann.

Hann segist hafa miklar áhyggjur að ef honum tekst ekki að fullnægja henni – og það bráðlega – þá muni hún fara frá honum og finna annan sem getur það.

„Það yrði leiðinlegt því ég er að verða ástfanginn af henni,“ segir maðurinn.

Konur í klámi fá það svo auðveldlega

„Stundum horfi ég á klám á netinu og hef tekið eftir því að fullt af konum njóta þess að stunda kynlíf með tveimur karlmönnum. Þær virðast alltaf fá alveg rosalegar fullnægingar í trekanti, þannig mér datt í hug að ég gæti fundið annan gaur til að sofa hjá mér og kærustu minni og þá myndi hún loksins fá fullnægingu,“ segir maðurinn og bætir við:

„Ég þarf bara að finna gaur með stærra typpi en ég.“

Hann tekur það fram að hann er ekki samkynhneigður og hefur engan áhuga á að stunda sjálfur kynlíf með manninum „en ég er viss um að ég muni njóta þess að horfa þau stunda kynlíf saman. Það kveikir reyndar alveg rosalega í mér.“

Lokaspurning mannsins er: „Hvar get ég fundið karlmann fyrir trekant? Ég held það sé betra ef við þekkjum hann ekki.“

Slökum aðeins á

Deidre svarar manninum og bendir honum á að slaka aðeins á. „Það er ýmislegt hægt að gera til að krydda upp á kynlífið áður en þú stingur upp á trekanti. Það síðasta sem þú vilt gera er að eyðileggja samband ykkar,“ segir hún.

„Einbeittu þér að hjálpa kærustu þinni njóta kynlífs með þér, hvað þá áður en þið spáið í að blanda öðrum í það.

Flestar konur fá ekki fullnægingu í gegnum leggöng heldur við snípsörvun. Það skiptir líka máli að kona sé „í stuði“ og það kemur meira að huganum en líkamanum. Þannig vertu viss um að kærasta þín sé slök og í stuði áður en þú byrjar á því að kyssa hana. Spurðu hana hvað kveikir í henni. Það er eins og þú sért að giska mjög mikið án þess að ræða við hana, en ef þið getið stundað kynlíf þá eigið þið að geta rætt um það.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki