Fyrrverandi Playboy kanínurnar Holly Madison og Bridget Marquardt ræða um tíma sinn í alræmdu Playboy-höllinni, en undanfarið ár hefur orðræða um höllina – og þess sem gerðist innan veggja hennar – verið mjög neikvæð. Fjöldi fyrrverandi „Playmates“ og fyrrverandi kærustur Hefner hafa stigið fram og lýst eitruðu menningunni sem þreifst þar inni.
Holly kom fram í heimildarþáttaröðinni Secrets of Playboy. Í þáttunum – sem komu út í byrjun árs 2022 – var kafað í veröld Hugh Hefner, stofnanda Playboy.
„Ég áttaði mig ekki á því að það væri hættuleg ákvörðun að koma inn í þennan heim,“ sagði Holly í þáttunum.
Sjá einnig: „Hópkynlíf fimm finnum í viku braut mig algjörlega niður“
Í nýjum hlaðvarpsþætti ræða Holly og Bridget nánar um tíma sinn í Playboy-setrinu. Holly var aðeins 21 árs þegar hún flutti í setrið árið 2001 og byrjaði stuttu seinna með Hefner, sem þá var 75 ára. Sambandinu lauk árið 2008 og yfirgaf Holly setrið seinna sama ár.
Bridget var 28 ára þegar hún flutti inn í setrið, árið 2002, og flutti út stuttu eftir Holly. Þær komu báðar fram í raunveruleikaþáttunum „The Girls Next Door“ ásamt Hefner og öðrum fyrrverandi Playmate, Kendru Wilkinson. Hefner lést árið 2017, þá 91 árs.
Í þættinum, Juicy Scoop, segja þær frá því þegar Hefner þrýsti á þær – og aðrar konur – að stunda óvarðar samfarir með honum.
Þær rifja upp fyrsta kynsvallið sem þær tóku þátt í. Það var eftir kvöld af djammi og drykkju og segir Bridget að hún ætlaði sér aldrei að taka þátt, heldur einungis horfa á.
„Ég ætlaði bara að horfa á og síðan [sagði annar Playmate] við mig: „Ætlar þú ekki að taka þátt?“ Þetta var alveg: „Þú þarft að taka þátt.“ Og ég sagði að ég vildi það helst ekki. Og hún sagði: „Jæja, þá verður þér örugglega ekki boðið aftur,““ segir Bridget.
Hún segir að hún hafi ákveðið að taka þátt. „Þetta tók ekki meira en mínútu,“ segir hún.
Holly segir að hún hefur reynt að „blokka“ eins margar minningar um þetta og hún getur, en hún segist muna eftir því að konurnar voru „að reyna að ljúka þessu sem fyrst.“
Þær sögðu að verjur voru ekki notaðar. „Þú hélst bara í vonina að allir væru að fara í tjékk reglulega og að allar konurnar væru bara með Hefner, en þú vissir það ekki,“ segir Bridget.
„Ef það voru nýjar stelpur að taka þátt, sem gerðist oft, þá langaði manni að vera sú fyrsta og ljúka þessu af. Mér fannst það vera snyrtilega leiðin.“
Sjá einnig: Playboy kanínurnar skömmuðust sín of mikið til að tala um getnaðarlim Hugh Hefner