Fjölmiðlamaðurinn Helgi Seljan og verkefnastjórinn Katrín Rut Bessadóttir eru gift. Þau greina frá gleðifregnunum á samfélagsmiðlum.
Helgi og Katrín kynntust þegar þau störfuðu bæði sem blaðamenn hjá DV. Þau trúlofuðust fyrir fjórtán árum og eiga saman þrjú börn.
Fókus óskar hjónunum innilega til hamingju.