fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

„Ég vaknaði og líkami minn var alelda“

Fókus
Mánudaginn 23. maí 2022 22:00

Skjáskot/YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nancy var nítján ára þegar hún vaknaði um miðja nótt alelda, hún hélt að hana væri að dreyma en þegar hún rankaði við sér á sjúkrahúsi tveimur vikum seinna vissi hún að líf sitt væri breytt til frambúðar.

Nancy er 40 ára í dag og hefur tekið örin í sátt. Hún segir sögu sína í þættinum „Shake My Beauty“ frá vefmiðlinum Truly.

Skjáskot/YouTube

Nancy kynntist fyrrverandi kærasta sínum þegar hún var táningur og byrjuðu þau saman þegar hún var um 16-17 ára. Þau hættu mörgum sinnum saman, og byrjuðu saman aftur, en þegar þau hættu saman í síðasta skipti segir Nancy hann hafa vitað að það yrði síðasta skiptið, þar sem hún var hrifin af öðrum manni.

„Síðan samþykkti ég að hitta hann í kvöldmat, því ég hugsaði: „Einn kvöldmatur í viðbót og svo þarf ég ekki að hitta hann aftur.“ Ég kom heim um miðnætti, við föðmuðumst í bílnum og svo sagði hann við mig: „Sjáumst í næsta lífi.“ Og ég skildi ekki hvað hann átti við,“ segir hún.

„Næsta sem ég vissi var að ég vaknaði alelda, en ég hélt þetta væri draumur. Mamma […] sagðist hafa séð hann hlaupa framhjá glugganum.“

35 prósent af líkama hennar var þakinn brunasárum.

Gleymir aldrei viskuorðum fréttaþular

„Það koma augnablik þar sem ég hugsa: „Af hverju ég? Mun ég komast í gegnum þetta.“ Þá hugsa ég til augnabliksins þegar ég var að horfa á fréttir, og þulurinn sagði eitt sem hefur síðan þá alltaf fylgt mér, hann sagði: „Af hverju gerast vondir hlutir fyrir gott fólk? Því það getur ráðið við það.““

Stuttu eftir árásina. Skjáskot/YouTube

Nancy segir að hún hélt sig heima fyrstu níu mánuðina eftir árásina, en með aðstoð fjölskyldu og vinkvenna byrjaði hún að fara út meðal almennings hægt og rólega.

„Hann vill að ég lifi ömurlegu lífi, en besta hefndin er að lifa mínu besta lífi,“ segir hún.

Horfðu á hetjulega frásögn Nancy í spilaranum hér að neðan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Eva Ruza fer í skóför Felix

Eva Ruza fer í skóför Felix
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sonur Elísu og Elíss fæddur

Sonur Elísu og Elíss fæddur
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“