Fyrirsætan Blac Chyna hélt því fram á Twitter á dögunum að hún hefði þurft að selja þrjá bíla sökum þess að hún fær engan stuðning frá barnsfeðrum sínum.
Blac Chyna á tvö börn. King Cairo, sem er níu ára, með rapparanum Tyga, og Dream, sem er 5 ára, með raunveruleikastjörnunni Robert Kardashian.
Fyrirsætan sagðist fá „engan stuðning“ frá fyrrverandi kærustum sínum. „Í gær þurfti ég að selja þrjá bíla,“ sagði hún en gaf í skyn að hún ætti enn einn eða fleiri bíla.
Yesterday I had to give up 3 of my cars …my reasons… morals, beliefs, being a single mother, no support I’m a MAMA
— Blac Chyna (@BLACCHYNA) March 30, 2022
Single no support child support
— Blac Chyna (@BLACCHYNA) March 30, 2022
Instagram-síðan Shade Room fjallaði um tístin hennar og skrifuðu báðir frægu barnsfeður hennar við færsluna.
Tyga skrifaði: „Ég borga rúmlega fimm milljónir króna á ári í skólagjöld fyrir son minn og hann býr hjá mér frá mánudegi til laugardags. Af hverju ætti ég að borga meðlag?“
Robert Kardashian, raunveruleikastjarna og bróðir Kardashian-Jenner systra, tók í sama streng.
„Ég borga 4,7 milljónir króna í námsgjöld á hverju ári fyrir dóttur mína. Ég sé um heilbrigðistengd útgjöld sem og þegar kemur að félagsstarfi. Dóttir mín er hjá mér frá þriðjudegi til laugardags. Af hverju ætti ég að borga meðlag?“
Tyga tók eftir verðmuninum á skólagjaldinu og svaraði Rob: „Hvernig ferðu eiginlega að því að borga 300 þúsund krónum minna? Ég vil endilega vita það.“