fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fókus

Búin að jafna sig eftir fjórtándu brjóstaaðgerðina – Þau stærstu til þessa

Fókus
Fimmtudaginn 17. mars 2022 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Breska glamúrfyrirsætan og athafnakonan Katie Price er búin að jafna sig eftir fjórtándu brjóstastækkunina og er hún núna með stærstu brjóstin til þessa. Daily Star greinir frá.

Skjáskot/Daily Star

Fyrirsætan, sem skráði sig nýlega á OnlyFans, fór í fyrstu brjóstaaðgerðina árið 1998. Hún fór svo í fyrstu brjóstaminnkunina árið 2008 en skipti aftur um skoðun og ákvað „því stærri því betri.“

Sjá einnig: Katie Price komin á OnlyFans – „Þetta er eitthvað sem ég var fædd til að gera“

Katie Price árið 1997, áður en hún fór í sína fyrstu brjóstastækkun.
Árið 1999.
Árið 2007.
Árið 2012.

Árið 2015 minnkaði hún brjóstin svo aftur, og skipti svo aftur um skoðun og lét stækka þau aftur.

Árið 2015.
Árið 2016.
Árið 2019.

Hún fór í fjórtándu brjóstaaðgerðina fyrir stuttu og er sögð vera yfir sig ánægð með útkomuna og segir The Sun að þetta sé stærstu brjóst hennar til þessa.

Hún er nú stödd um þessar mundir í Taílandi ásamt unnusta sínum Carl Woods. Fjölskylda Katie er hins vegar ekki ánægð með allar þessar aðgerðir og hefur móðir hennar miklar áhyggjur af henni.

„Hún lætur mig ekkert vita áður en hún fer í þessar aðgerðir því hún veit að ég er ekki sátt við þetta. Hún þarf ekki á þessu að halda. Kannski er hún með líkamsskynjunarröskun eða henni finnst hún ekki nógu að­laðandi. En hluti af vandanum er að hún fær þessar að­gerðir án endur­gjalds, þannig að ein­hver annar græðir á henni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Í gær

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar
Fókus
Fyrir 5 dögum

Bjútífilterar á samfélagsmiðlum orðnir svo lúmskir – „Þetta er ekki raunveruleikinn“

Bjútífilterar á samfélagsmiðlum orðnir svo lúmskir – „Þetta er ekki raunveruleikinn“