Metfjöldi kórónuveirusmita greindist hér innanlands í gær en alls greindust 2.254 einstaklingar í gær. 29 prósent þeirra voru í sóttkví við greiningu. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í nýjum tölum sem birtar voru á upplýsingasíðunni covid.is í morgun.
Þá kemur einnig fram að núna eru rúmlega 10 þúsund manns í einangrun hér á landi og rúmlega 8 þúsund í sóttkví.
Eldum rétt, fyrirtækið sem útbýr matarpakka sem fólk eldar sjálft heima hjá sér, hefur brugðist við þessum metfjölda smita með nýjum matarpakka, bragðlausa pakkanum.
Í ljósi metfjölda í smitum munum við bjóða upp á Bragðlausa pakkann™ í næstu viku. Bara mjög holl en alveg ótrúlega bragðvond hráefni. Pöntunarfrestur til miðnættis í kvöld ✌️
— Eldum rétt (@EldumRett) February 9, 2022
Ljóst er þó að um grín er að ræða hjá Eldum rétt þar sem ekki er hægt að panta umræddan pakka á vefsíðunni þeirra.