Forbidden America eru nýir heimildaþættir á BBC þar sem Louis Theroux skoðar áhrif Internetsins og samfélagsmiðla á umdeilda kima bandarísks samfélags. Í nýjasta þættinum ræðir hann við klámstjörnuna Miu Malkova, sem lék áður í klámmyndum áður en hún stofnaði OnlyFans-síðu.
Hún er í dag ein vinsælasta OnlyFans-stjarna heims og var Louis agndofa þegar hún sagði honum hvað hún þénar á mánuði.
Louis heimsótti stjörnuna á heimili hennar, en hún keypti „Blackberry Castle“ í fyrra á 480 milljónir króna. Kastalinn stendur á 25 þúsund fermetra lóð í Portland, Oregon.
Sjá einnig: Innlit í klámstjörnukastalann
Í þættinum ræða Mia og Louis saman um starfið. Stjarnan er með áratuga reynslu í klámstjörnubransanum en vinnur nú að heiman og er eigin herra.
Hún er með tæplega ellefu milljón fylgjendur á Instagram og um 40 þúsund áskrifendur á OnlyFans, sem borga henni fyrir erótískt myndefni.
Aðspurð hvað hún þénar mikið á OnlyFans segir hún: „150 til 250, fer eftir mánuðinum.“
„150 þúsund dollara til 250 þúsund dollara? Vá,“ sagði þá Louis.
Það gerir um 19 til 31,5 milljónir íslenskra króna á mánuði.
„Já, ég elska OnlyFans. Ég þénaði ekki svona mikið þegar ég var að leika í klámi. Og ég stjórna núna öllu, ég geri þetta heima, ég geri það sem ég vil og hvernig ég vil hafa það. Lífsgæðin eru bara miklu betri,“ sagði hún.