fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

„Þegar ég vaknaði aftur var hjúkrunarkona að horfa á mig eins og hana langaði að bjarga mér frá helvítinu sem ég var fastur í“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 18. nóvember 2022 15:00

Eymar og konan hans Harpa. Aðsend mynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarmaðurinn Eymar hefur lifað heimana tvo og opnar sig nú fyrst um sína sögu.

Eymar fæddist á Sauðárkróki og segir barnæskuna hafa verið hamingjusama, skólinn hafi gengið vel og hann hafi verið virkur í fótbolta og körfubolta en lífið tók snarpa U-beygju þegar Eymar fór að fikta við áfengi á unglingsárum.

„Ég byrjaði að drekka fimmtán ára gamall og drakk næstu sautján árin eftir það. Ég var 32 ára þegar ég náði að hætta. Ég hef verið edrú í fjögur ár og það er magnað hversu hratt lífið breyttist eftir það,“ segir hann.

Helgardrykkja varð að dagdrykkju

Eymar segir að drykkjan hafi fyrst byrjað um helgar, síðan var hann farin að drekka hverja helgi en um átján ára aldurinn var hann kominn í dagdrykkju og þaðan var ekki aftur snúið.

Á átjánda aldursári flutti hann til Reykjavíkur og þar hélt drykkjan áfram ásamt notkun örvandi efna sem buðu upp á enn meira drykkjuþol.

Eymar segir að þessi fyrstu ár í Reykjavík hafi verið stjórnlaus og hann hafi verið mjög týndur. En hann segir að hann hafi alla tíð verið með hjartað á réttum stað og tónlistin hafi fylgt honum hvert sem hans för hans var heitið.

„Ég var ábyggilega með virkustu tónlistarmönnum á Íslandi á þessum tíma án þess að fá nokkurn tímann borgað fyrir neitt. Ég tók gítarinn með mér í öll partý þar sem ég spilaði og hélt uppi stuðinu fyrir vinum og vandamönnum,“ segir hann.

Þegar hann var 25 ára eignaðist hann hundinn Mola. Á sama tíma lagði hann flöskuna á hilluna í örskamma stund en féll svo í helgardrykkju skömmu seinna en tókst að halda drykkjunni innan þess ramma.

Hundurinn Moli. Aðsend mynd.

Kynntist konunni sinni

Eymar kynntist svo konunni sinni Hörpu og saman eignuðust þau sitt fyrsta barn. Hann var á þessum tíma búinn að telja sér trú um að hann væri ekki lengur að glíma við alkóhólisma en Harpa benti honum á að hann væri að misnota áfengi með því að drekka allar helgur og fram að hádegi næsta dags.

„Það sem enginn sá var að hverja helgi þurfti ég að drekka einn þangað til fram að hádegi daginn eftir, talandi við sjálfan mig, aleinn og týndur,“ segir Eymar

Næstu árin voru þau erfiðustu sem hann hafði upplifað. Hann vildi allt gera fyrir son sinn og konu en var í stríði við Bakkus – sem sleppti ekki takinu – á sama tíma.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Eymar Gíslason (@eymargislason)

Mun aldrei gleyma því hvernig hjúkrunarfræðingurinn horfði á hann

Eymar hefur samið tónlist í gegnum ferlið og gaf út plötuna 2018 nýlega. Hún fjallar um baráttuna við brennivínið, hann hefur bæði tapað og sigrað, dottið niður og staðið aftur upp.

Fimmta lag plötunnar heitir 2018 og fjallar um þann tíma sem ég upplifði versta kvöld ævi minnar. Ég gat ekki drukkið lengur og á sama tíma gat ég ekki hætt að drekka. Kvöldið endaði á gjörgæslu þar sem ég lá í alvarlegu ástandi. Ég man að þegar ég vaknaði aftur var hjúkrunarkona að horfa á mig eins og hana langaði að bjarga mér frá helvítinu sem ég var fastur í. Ég mun aldrei gleyma því,“ segir hann.

Eymar segir að hjúkrunarfræðingurinn á vakt hafi átt mikinn þátt í bataferlinu hans og hjálpað honum að sjá hlutina í réttu ljósi og segist hann henni ævinlega þakklátur.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Eymar Gíslason (@eymargislason)

Datt aftur í það

Fjórum dögum eftir að Eymar útskrifaðist af spítalanum datt hann aftur í það. En eitthvað var breytt og hann ákvað á því augnabliki að leita sér hjálpar. Hann hefur ekki drukkið síðan og það eru liðin um fjögur ár.

Það var fyrst eftir að hann kvaddi drykkjuna sem að allir hans draumar urðu að veruleika. Það bættist lítil stúlka í fjölskylduhópinn og hann gat byrjað að sinna listamannadraumnum sínum um að taka upp og gefa út tónlist.

Eymar segir að þessi sautján ár sem hann drakk hafi liðið á ofsahraða, eins og að blikka augunum. Sautján ár liðu án þess að hann hafi gert sér grein fyrir því að til þess að geta tekist á við vandamálið að alvöru þyrfti hann að fá utanaðkomandi aðstoð.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Eymar Gíslason (@eymargislason)

Hvetur aðra í sömu sporum að leita sér hjálpar

Eymar hvetur aðra í sömu sporum til þess að teygja út höndina og vera ófeimin við að biðja um aðstoð því það eru svo margir sem eru tilbúnir að hjálpa.

„Á þessum árum sem ég hef fengið að vera edrú hef ég horft á eftir ótal vinum mínum falla frá, fyrir eigin hendi eða út af beinum afleiðingum alkahólismans og ég hugsa bara alltaf hvað ég er ótrúlega þakklátur fyrir að fá að vera hérna,“ segir hann.

Lokalagið á plötunni hans heitir einmitt: „Ef ég væri ekki hérna.“

Bein frásögn af lífinu hans

Platan hans 2018 er bein frásögn frá lífinu hans í borginni og leiðir okkur í gegnum týndu árin alveg fram í sigurinn við bakkus og alla þá sorg, hamingju og þrautir sem að Eymar fór í gegnum á þessum árum þar til hann fann sjálfan sig á ný og segir hann það einungis vera byrjunina á þeim sögum sem hann hefur að bera.

Þú getur fylgt Eymari á samfélagsmiðlum hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki