Virkilega falleg þriggja herbergja íbúð með sérinngangi á fyrstu hæð við Löngumýri 22 í Garðabæ er til sölu.
Íbúðinni fylgir bílskúr og sólpallur. Eignin er skráð 125,7 fermetrar og skiptist í tvö svefnherbergi, stóra stofu á tveimur pöllum, eldhús, baðherbergi, þvottahús/geymslu, hol, anddyri og bílskúr.
Ásett verð er 75,9 milljónir.
Hægt er að lesa nánar um eignina og skoða fleiri myndir á fasteignavef DV.