Stjörnukírópraktorinn Guðmundur Birkir Pálmason, betur þekktur sem Gummi kíró, fór á skeljarnar og bað kærustu sinnar, athafnakonunnar Línu Birgittu Sigurðardóttur í París á dögunum. Hún hélt í fyrstu að hann væri að grínast, en svo var ekki og hún sagði já.
Parið, sem bæði eru vinsælir áhrifavaldar, greindi frá gleðifréttunum á Instagram.
„Þetta kom mér mikið á óvart og ég hélt að hann væri að grínast til að byrja með,“ segir Lína og hlær. „En svo var ekki og að sjálfsögðu sagði ég já!“
Lína og Gummi hafa verið saman í rúmlega tvö og hálft ár. Þau eru ekki aðeins par heldur einnig viðskiptafélagar og gáfu nýverið út sólgleraugu saman undir merkinu Moxen Eyewear og vinna í að opna svokallað „Business Pad“.
Sjá einnig: Lína Birgitta og Gummi Kíró opna sig um sambandið og upphaf þess – „Ég þurfti að hringja í vin“
View this post on Instagram