Í nýjasta þætti Kvennaklefans var fjallað um veganúar. Ingibjörg Rósa Björnsdóttir er að taka þátt í veganúar í fyrsta sinn í ár. „Maður fær oft smá ógeð á sjálfum sér eftir hátíðarnar. Ég hef prófað ýmislegt, og ég fékk krabbamein fyrir nokkrum árum og hef því prófað mig áfram með mataræðið.“ Ingibjörn lýsir ákveðinni togstreitu, verandi dóttir sauðfjárbænda. Hún ákvað að kýla á þetta núna þar sem boðið er upp á ráðgjöf í ár.
Björk Gunnarsdóttir hjá Grænkerafélaginu hefur haldið utan um að para fólk saman, nýliðana og þá sem hafa verið vegan í fjölda ára. Hún reyndi að para líkt fólk saman, hvað varðar kyn, aldur og staðsetningu.
Valgerður Árnadóttir, formaður Grænkerafélagsins segir að í ár séu fleiri eldri að skrá sig en áður – líklega því að fólk hefur kveikt á grænkerafæðinu yfir hátíðarnar. Sú elsta sem Valgerður veit af í ár er áttatíu og þriggja ára. Horfðu á viðtalið hér: