fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Drew Barrymore viðurkennir að hafa verið í opnu sambandi með Luke Wilson

Fókus
Föstudaginn 28. janúar 2022 09:33

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Drew Barrymore og Luke Wilson voru heitasta stjörnuparið í lok tíunda áratugar á síðustu öld. Leikkonan rifjaði upp samband þeirra í spjallþætti sínum The Drew Barrymore Show.

„Þetta var opið samband. Við vorum ung,“ sagði hún við leikkonuna Kate Hudson sem var gestur í þættinum.

Drew Barrymore og Luke Wilson.

„Ég hef einnig verið þarna með Wilson,“ sagði þá Kate í gríni, en hún var í sambandi með bróður Luke, Owen Wilson.

Drew segir að það hefði verið „svo gaman“ að deita á þessum tíma því „þegar þú ert ung þá er ekki svo mikið í húfi.“ Parið var saman frá 1997 til 1999.

„Við vorum bara að hafa gaman, eyða tíma saman […] þetta var gaman og við skemmtum okkur konunglega,“ segir hún.

Vinkonurnar ræddu um það hvernig þær kynntust í gegnum Luke. Drew var í sambandi með honum og Kate var að vinna með honum að myndinni „Alex and Emma.“

Hvorugar stjörnurnar eru enn í sambandi með Wilson bróður. Kate Hudson er trúlofuð Danny Fujikawa, sem hún hefur verið í sambandi með í fimm ár. Þau eignuðust dóttur árið 2018. Kate á tvö börn úr fyrri samböndum.

Drew á tvær dætur með fyrrverandi eiginmanni sínum og er einhleyp í dag.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 3 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“