Þátturinn Matur&heimili er á dagskrá Hringbrautar í kvöld kl. 19 og aftur kl. 21.
Í þætti kvöldsins kynnir Sjöfn Þórðar sér sérstaga macrosmataræði. Margir hafa heyrt um það en færri vita í raun um hvað það snýst. Í þætti kvöldsins hittir Sjöfn Þórðar Inga Torfa og Lindu Rakel sem eru með fyrirtækið ITS sem sérhæfir sig í því að þjálfa og leiðbeina fólki að ná tökum á mataræði sínu með macrosmataræði. Í þættinum svipta þau hulunni af hugmyndafræðinni.
„Macrosmataræðið er aðferð sem byggir á því að vigta og skrá allt ofan í sig,“ segir Ingi Torfi og bætir við að þetta gangi út á að þau vinni með næringarefnin kolvetni, prótein og fitu.
„Ég var örugglega búin að prófa alla kúrana sem í boðið hafa verið,“ segir Linda Rakel. „Melónukúr, safakúr, Paleo, fasta, 5:2, ég prófaði þetta allt. Þegar ég byrjaði að telja macros þá kemur svo mikil þekking, sem er það sem gerir þetta að lífsstíl.“
Einnig heimsækir Sjöfn Guðný Magnúsdóttir leirlistakonu og fagurkera á fallegt og listrænt heimili hennar í Hlíðunum og vinnustofu hennar þar sem töfrarnir í listköpuninni gerast.
„Ég er mjög hrifin af tímalausri fallegri hönnun og samtímamyndlist. Líklega er stíllinn á mínu heimili frekar skandinavískur, módernískur og fúnkis, en ég er mjög hrifin af húsgögnum frá Bauhaus tímanum og tengi þau öðru yngra,“segir Guðný. Á heimili hennar má sjá mikið af fallegu handverki og hönnun sem fangar augað.
Brot úr þætti kvöldsins má sjá í spilaranum hér fyrir neðan: