fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Fókus

Eva útskýrir hvers vegna hún fékk sér sílíkonbrjóst

Máni Snær Þorláksson
Miðvikudaginn 12. janúar 2022 16:00

Eva Ruza Mynd: Ernir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samfélagsstjarnan og skemmtikrafturinn Eva Ruza var gestastjórnandi í Síðdegisþættinum á K100 með Sigga Gunnars í gær. Þar ræddi Eva meðal annars um ástæðuna fyrir því að hún ákvað að fá sér sílíkonbrjóst.

Eva sagði í þættinum að hún væri ekkert feimin við að viðurkenna það að hún er með sílíkonbrjóst. Þá sagði hún að ástæðan fyrir því að hún ákvað að fá sér sílíkonbrjóst væri rosalega fyndin.

„Ég sem sagt þeirrar gæfu aðnjótandi að eiga tvíbura en áður en ég átti börnin mín þá var ég bara ekki með brjóst. Svo þurftum við að fara í eitthvað tæknivesen og eitthvað, við þurftum að fara þrjár tæknisæðingar. Þannig ég þurfti að vera að taka hormóna og alls konar og svo náttúrlega koma tvö undir og þá „doblast“ allt hjá manni. Þar á meðal tútturnar,“ segir Eva í þættinum.

Einn daginn vaknaði Eva og þá hafi leið henni eins og köttur hefði komið og klórað bæði brjóstin. „Þau voru bara slitin í drasl. Þau voru bara orðin einhver ferlíki framan á mér. Mér leið eins og þetta hefði gerst á einni nóttu, þau voru eiginlega ónýt,“ segir hún.

„Svo hangir þetta bara eins og tómir tepokar niður á nafla sem er náttúrlega viðbrigði fyrir konu sem hafði aldrei verið með brjóst, að vera með eitthvað hangandi flatt niður. Það sást ekki í mittið á mér fyrir brjóstum.“

Þá segir Eva að eitt skiptið hafi hún verið að taka saman þvott og á meðan sat sonur hennar beint fyrir neðan fæturna hennar. „Ég er að beygja mig niður og taka eitthvert dót upp af gólfinu og svo heyri ég allt í einu í honum „ding, ding, ding“ og fann fyrir snertingu,“ segir hún.

Eva hafði þá ekki tekið eftir því að annað brjóstið hennar hafði lekið upp úr hlýrabolnum og brjóstið hékk út fyrir bolinn. „Hann sá þetta sem tækifæri til að leika sér og sat á gólfinu og var að dingla svona, með hendurnar upp í loft. Ég var tilfinningalaus í brjóstinu af því að það var allt ónýtt,“ segir hún.

Eftir þetta ræddi hún við manninn sinn. „Þá sagði ég við Sigga manninn minn: „Nei, Siggi, hingað og ekki lengra. Nú læt ég laga þessar júllur.“ Og barnið hefur ekki leikið sér við þetta síðan.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Í gær

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar