Bílabíó RIFF verður haldið laugardaginn 24. September kl. 19. Risastóru bíótjaldi verður komið fyrir á efra bílastæðaplani við verslunarmiðstöðina Smáralind þar sem tekið verður vel á móti bíó þyrstum bílstjórum og vinum þeirra. Myndin sem sýnd verður að þessu sinni er Talladega Nights: The Ballad of Ricky Bobby.
Bílabíó RIFF eru vel sóttir viðburðir og gefa þeim færi að sækja kvikmyndasýningar á stórum skjá sem ekki geta nýtt sér þjónustu hefðbundinna kvikmyndahúsa. Bílabíó eru skemmtileg tilbreyting við hefðbundnar kvikmyndasýningar og skapa hliðstæðu við menningarheim Bandaríkjanna sem gerði bílabíósýningar ódauðlegar á síðustu öld.
Sýningin er í samstarfi við fjármögnunarfyrirtækið Ergo sem sérhæfir sig í fjármögnun atvinnutækja og atvinnuhúsnæðis fyrir rekstraraðila og fjármögnun bíla og ferðavagna fyrir einstaklinga. Ergo byggir á yfir 30 ára reynslu og þekkingu en fyrirtækið er í eigu Íslandsbanka.
Bílabíó RIFF er gestum að kostnaðarlausu svo fyrstir koma – fyrstir fá. Ekki missa af þessum skemmtilega viðburði!
Talladega Nights: The Ballad of Ricky Bobby
Adam McKay, US, 2006
Handritið er skrifað af Adam McKay og Will Ferrel og fjallar um Ricky Bobby, sem fæðist í bíl, ekið á ofsahraða. Ricky hefur þess vegna gríðarlega þörf til að vera á mikilli ferð og sækist eftir því að komast að í NASCAR kappakstrinum. Söguhetjan lendir í alls kyns mótlæti, í anda Ferrel mynda, og tekst á við ólík og einkennileg vandamál með kómískum hætti. Myndin er hlaðin úrvali þekktra gamanleikara. Auk Ferrel fara John C. Reilly, Sacha Baron Cohen, Leslie Bibb, og Amy Adams með hlutverk í myndinni. NASCAR bílstjórarnir Jamie McMurray og Dale Earnhardt Jr. fara einnig með aukahlutverk í myndinni.
Um RIFF
RIFF er nú haldin í nítjánda skiptið og fer fram í Háskólabíói við Hagatorg í ár. Hátíðin hefur skipað sér á bás sem ein eftirsóttasta kvikmyndahátíð Norðurlanda. Meginhlutverk RIFF er að tryggja víðtækt úrval af hágæða, óháðri kvikmyndaframleiðslu með áherslu á unga kvikmyndagerðarmenn. Tilgangur hátíðarinnar er að vekja áhuga á kvikmyndamenningu, auka kvikmyndalæsi og auðga kvikmyndamenningu á Íslandi með áherslu á alþjóðlega strauma. RIFF er einnig ætlað að skapa farveg fyrir viðskipti, nýsköpun, listsköpun, myndun alþjóðlegs tengslanets og samræðu við samfélagið og samtímann. RIFF er óháð hátið, rekin án hagnaðar.