Áhrifavaldurinn og athafnakonan Camilla Rut Rúnarsdóttir og fyrrverandi eiginmaður hennar, Rafn Hlíðkvist Björgvinsson, selja heimili sitt í Njarðvík.
Í maí greindu þau frá því að þau hygðust skilja í myndbandi á Instagram, en Camilla er með tæplega 32 þúsund fylgjendur á miðlinum.
Nú er komið að því að selja einbýlishúsið í Njarðvík en þau sem hafa fylgt Camillu lengi fengu að fylgjast með byggingarferlinu – húsið var byggt 2018 – og innanhúspælingum hjónanna á sínum tíma.
Eignin er 155 fermetrar og skiptist í anddyri, borð- og setustofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, tvö baðherbergi, þvottahús og bílskúr. Auk þess er 120 fermetra timburverönd í kringum húsið með heitum potti. Ásett verð er 84,9 milljónir. Smartland greinir frá.
Það er hægt að skoða fleiri myndir á fasteignavef Vísis.