fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Khloé Kardashian rýfur þögnina um son hennar með Tristan

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Fimmtudaginn 1. september 2022 10:00

Khloé og Tristan. Myndir/Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Raunveruleikastjarnan Khloé Kardashian opnar sig í fyrsta skipti um lífið sem tveggja móðir í viðtali við Elle.

Hún og körfuboltakappinn Tristan Thompson eignuðust annað barn sitt saman með hjálp staðgöngumóður í byrjun ágúst. Fyrir eiga þau dótturina True Thompson, 4 ára.

Þau hættu saman í byrjun árs 2022 eftir að það kom í ljós að Tristan hélt framhjá henni – aftur – og í þetta sinn feðraði hann barn með einu viðhaldinu.

Þess vegna voru aðdáendur hissa þegar fréttir bárust í júlí síðastliðnum að fyrrverandi parið ætti von á barni. Samkvæmt erlendum miðlum var staðgöngumóðirin komin nokkrar vikur á leið þegar Khloé komst að framhjáhaldinu.

Elskar að vera móðir

Hingað til hefur Khloé ekki rætt opinberlega um meðgönguna eða son sinn. Hún rýfur þögnina í viðtali við Elle og segist elska að vera tveggja barna móðir. „Ég veit að ég er algjör klisja, en ég elska allt. Meira að segja það erfiða,“ segir hún.

„Það er heiður og gjöf að fá að móta þessar litlu manneskjur í ótrúlega einstaklinga,“ segir hún og bætir við að það sé mikilvægt að taka þessu hlutverki alvarlega.

Heimildarmaður E! News segir að Khloé hafi haldið meðgöngunni leyndri til að „tryggja öryggi og einkalíf staðgöngumóðurinnar og til að vernda andlega heilsu sína gegn almenningsáliti vegna gjörða Tristans.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 3 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“