Hálandaleikarnir fóru fram síðasta laugardag á Akranesi og voru hluti af hátíðinni Írskir dagar sem haldnir voru um síðustu helgi.
Keppnin heppnaðist frábærlega. Keppt var í hefðbundnum Hálandagreinum sem eiga sér uppruna í Skotlandi, steinakasti, lóðakasti og sleggjukasti með tréskafti.
Svavar Sigursteinsson varð hlutskarpastur á mótinu en Páll Logason lenti í öðru sæti og Tómas Darri Þorsteinsson í því þriðja.
Meðfylgjandi eru myndir af keppendum á mótinu.