TMZ skýrir frá þessu og hefur eftir heimildarmanni að ekki sé enn búið að ákveða hver leiði Britney upp að altarinu.
Britney birti myndband af sér og Sam í gær þar sem ekki er annað að sjá en að búið sé að gera neglur hennar klárar fyrir stóra daginn. Hún og Sam sjást aka um í Rolls-Royce og dreypa á kampavíni í myndbandinu.
Unnið hefur verið að undirbúningi brúðkaupsins mánuðum saman en Sam fór á skeljarnar og bað hennar í september.
Þegar hún losnaði undan forræði föður síns, sem hafði stýrt fjármálum hennar og mörgu öðru árum saman, gerði hún öllum ljóst að hún vildi giftast, kaupa hús og eignast börn.
Í apríl tilkynntu skötuhjúin að Britney væri barnshafandi en því miður missti hún fóstrið.
Skötuhjúin kynntust 2016 og hafa verið saman síðan.
Þetta verður þriðja hjónaband Britney en hún var gift Jason Alexander og Kevin Federline. Þetta verður fyrsta hjónaband Sam.