Leikarinn myndarlegi er ekki beint sjálfum sér líkur í kvikmyndinni Maestro sem er væntanleg á Netflix, líklega þó ekki fyrr en á næsta ári. Þar leikur Cooper fræga tónlistarmanninn og tónskáldið Leonard Bernstein, en Cooper leikstýrir jafnframt myndinni og er annar höfunda handritsins.
Í myndinni er fjallað um ævi og störf Bernsteins, og því þarf Cooper að bregða sér í gervi Bernsteins á mismunandi aldursskeiðum. Netflix hefur deilt nokkrum myndum úr kvikmyndinni á samfélagsmiðlum sínum og þótti aðdáendum stórfurðulegt að sjá Cooper í gervi Bernsteins á gamals aldri, enda þykir Cooper - sem er 47 ára gamall- eldast eins og gott vín.
Á móti Cooper leikur leikkonan Carey Mulligan sem nýlega sló í gegn í myndinni Promising Young Woman.
https://twitter.com/BBellCanto/status/1531455566840795138
https://twitter.com/playsbyme/status/1531305341270765568
https://twitter.com/JScottSibley/status/1531627640121184258
https://twitter.com/jessicalyneross/status/1531330534567251970