Síðara undanúrslitakvöldið í Eurovision er hafið í Tórínó á Ítalíu. Fylgjast má með keppninni í beinni útsendingu á RÚV.
Eins og frægt varð á þriðjudagskvöldið eru Íslendingar búnir að vinna sér þátttökurétt í lokakeppninni á laugardagskvöld en Systurnar komust áfram með laginu Með hækkandi sól.
Í kvöld stíga listamenn frá 18 löndum á stokk og 10 komast áfram í lokakeppnina. Keppendur í kvöld eru eftirtaldir, í sömu röð og þeir flytja sín atriði:
Finnland, Ísrael, Serbía, Asebajdjan, Georgía, Malta, San Marínó, Ástralía, Kýpur, Írland, Norður-Makedónía, Eistland, Rúmenía, Svartfjallaland, Belgía, Svíþjóð og Tékkland.