fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Barnastjarna og fegurðardrottning látin aðeins 16 ára

Fókus
Miðvikudaginn 4. maí 2022 09:23

Kailia Posey í Toddlers and Tiaras.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kailia Posey, sem kom fram í raunveruleikaþáttunum Toddlers & Tiaras á TLC, er látin aðeins sextán ára gömul. Móðir hennar, Marcy Posey Gatterman, greindi frá því á Facebook fyrr í vikunni.

„Ég er orðlaus. Elsku fallega stelpan mín er farin. Vinsamlegast efið okkur næði til að syrgja,“ skrifaði hún.

Samkvæmt TMZ, sem ræddi við fjölskyldu Kailiu, svipti hún sig lífi.

„Þó svo að hún hafi verið hæfileikaríkur unglingur með bjarta framtíð þá átti hún hvatvíst augnablik og tók þá fljótfærnislegu ákvörðun að enda líf sitt á jörðinni,“ sagði fjölskyldan og fór yfir afrek hennar.

„Hún keppti í fegurðarsamkeppnum allt sitt líf og vann óteljandi fjölda af kórónum og titlum […] Hún var þegar búin að fá nokkur atvinnutilboð sem liðamjúkur skemmtikraftur (e. contortionist) vegna hæfileika sinna, og var nýlega valin í klappstýruhóp framhaldskólans hennar fyrir næsta haust.“

Kailia fagnaði sextán ára afmæli sínu þann 20. apríl síðastliðinn. Síðasta myndin sem hún deildi á Instagram var 23. apríl.

Kailia byrjaði að keppa í fegurðarsamkeppnum þegar hún var þriggja ára gömul og kom fram í vinsælu raunveruleikaþáttunum Toddlers & Tiaras þegar hún var fimm ára gömul. Hér að neðan má sjá innslagið úr þættinum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 3 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar