Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík, og Milla Ósk Magnúsdóttir, aðstoðarmaður Willum Þórs Þórssonar, heilbrigðisráðherra, eignuðust lítinn dreng þann í byrjun mánaðarins. Faðirinn greinir stoltur frá drengnum í færslu á Facebook-síðu sinni.
„3. apríl kom þessi dásemdar drengur óvænt í heiminn. Hann var tæpar 16 merkur og stækkar hratt. Bæði móður og barni heilsast vel og mikil hamingja á heimilinu. Systurnar Auður og Soffía taka stóru-systur hlutverkinu mjög alvarlega og slást um að fá að halda á. Minna er slegist um að skipta á kúkableyjum og fellur það hlutverk aðallega föður í hlut. Ég á engin orð til að lýsa aðdáun og ást minni á Millu Ósk í móðurhlutverkinu,“ skrifar Einar.
Þetta er fyrsta barn hjónanna saman en fyrir á Einar tvær dætur úr fyrra sambandi. Fókus óskar fjölskyldunni innilega til hamingju.