LXS-hópurinn er án nokkurs vafa einn dáðasti vinkvennahópur landsins. Meðlimir hafa á að skipa tugþúsundum fylgjenda og því vekja uppátæki hópsins mikla athygli. Vinkonurnar gerðu sér lítið fyrir um helgina og skelltu sér norður yfir heiði á glæsilegri Chevrolet-kerru sem var merkt með einkanúmerinu LXS.
Sjá einnig: Svona varð vinsælasti vinkonuhópur landsins til
Hópurinn skálaði í freyðivíni á meðan bílferðinni stóð og stoppaði að sjálfsögðu fyrir myndatökur.
View this post on Instagram
Förinni var heitið til Sauðárkróks þar sem hópurinn gisti á sveitasetrinu Hofsstöðum auk þess sem snætt var á nýjum veitingastað, Sauðá. Heimamenn tóku vel á móti hópnum og mátti sjá á Instagram-reikningum LXS-meðlima að boðið var uppá sérstaka einkaopnun á skíðasvæði Tindastóls fyrir hópinn.
View this post on Instagram
View this post on Instagram