Söngkonan Britney Spears hefur líklega aldrei verið hamingjusamari en þessa dagana. Stutt er síðan hún öðlaðist frelsi frá oki föður síns og nýtur hún nú lífsins sem aldrei fyrr.
Hún er trúlofuð fyrirsætunni og einkaþjálfaranum Sam Asghari sem hún kynntist við tökur á myndbandi við lagið Slumber Party árið 2016 og hefur hann stutt hana dyggilega alla tíð.
Sem dæmi um fögnuð frelsisins hjá Britney þá ákvað hún að sitja fyrir í engum nærbuxum í nýrri færslu á Instagram þar sem hún skrifar: „Free woman energy has never felt better“ sem má túlka bæði þannig að hún fagni því að vera frjáls kona en líka að hún fagni kvenfrelsinu. Til að passa upp á að brjóta ekki skilmála Instagram notar hún síðan hjarta-tjákn til að hylja hið allra heilagasta. Áfram Britney!
View this post on Instagram