fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fókus

Lína Birgitta selur skó á 100 þúsund krónur

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 3. september 2021 15:00

Lína Birgitta sýnir reglulega frá merkjavörum á Instagram.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Athafnakonan og áhrifavaldurinn Lína Birgitta Sigurðardóttir er einn helsti sérfræðingur landsins um merkjavörur.

Hún á og rekur íþróttavörumerkið Define The Line. Hún er einnig afar vinsæl á samfélagsmiðlum með rúmlega 23,5 þúsund fylgjendur á Instagram. Hún er dugleg að sýna frá tískuvörunum sem hún hefur fjárfest í og deilir reglulega myndböndum þar sem hún tekur upp nýjar vörur og bregst við í beinni.

Sjá einnig: Verðmæti merkjavörusafns áhrifavaldsins Línu Birgittu hleypur á milljónum – Sjáðu myndir og listaverð

Lína Birgitta er að selja nokkrar merkjavörur núna á Instagram. Hún auglýsti lítið notaða Dior skó fyrr í dag. Skórnir kosta nýir 130 þúsund og vill hún 100 þúsund fyrir þá.

„Ég ætla að selja nýju Dior skónna sem ég keypti mér um daginn! Þeir kosta 130 þúsund en ætla að selja þá á 100 þúsund ef einhver vill kaupa þá,“ segir Lína Birgitta.

„Ég hef notað þá einu sinni og þeir eru í stærð 39.“

Skjáskot/Instagram

Lína segist ætla að selja fleiri skó og töskur. „Því ég á orðið svolítið mikið af dóti núna. Hélt ég myndi aldrei segja þetta,“ segir hún.

Hún er búin að auglýsa tvö veski en von er á fleiri vörum seinna í dag eða um helgina.

Skjáskot/Instagram
Skjáskot/Instagram
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 22 klukkutímum

Harmsaga systkinanna Rakelar og Heimis – „Ég man eftir mömmu á þessum tíma, annað hvort öskrandi eða sofandi“

Harmsaga systkinanna Rakelar og Heimis – „Ég man eftir mömmu á þessum tíma, annað hvort öskrandi eða sofandi“
Fókus
Í gær

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hjónabandsráðgjafi segir þetta merkið um að sambandið sé búið

Hjónabandsráðgjafi segir þetta merkið um að sambandið sé búið
Fókus
Fyrir 2 dögum

Snorri vissi varla hvaðan á sig stóð veðrið þegar Sigmundur Davíð og Bergþór bönkuðu upp á

Snorri vissi varla hvaðan á sig stóð veðrið þegar Sigmundur Davíð og Bergþór bönkuðu upp á
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bikinímynd Kim Kardashian að athlægi – Sérð þú af hverju?

Bikinímynd Kim Kardashian að athlægi – Sérð þú af hverju?
Fókus
Fyrir 4 dögum

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Það er eiginlega mannréttindabrot að neita sjúklingum á Íslandi um þetta“

„Það er eiginlega mannréttindabrot að neita sjúklingum á Íslandi um þetta“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Jenna Jameson að skilja – Braut mjög mikilvæga reglu sem eiginkonan setti fyrir hana

Jenna Jameson að skilja – Braut mjög mikilvæga reglu sem eiginkonan setti fyrir hana