Laura Amherst er 31 ára stjórnmálafræðinemi sem hefur undanfarið ratað nokkuð oft í breska fjölmiðla. Ástæðan fyrir viðveru hennar í fjölmiðlum hið ytra er sú að hún mætir reglulega á loftlagsmótmæli í Bretlandi og er oftar en ekki ber að ofan á meðan hún mótmælir.
Amherst er hluti af hópnum Extinction Rebellion sem hefur haldið áberandi mótmæli í Bretlandi síðustu vikur, mótmælin ganga oft lengra en önnur mótmæli í sama málaflokki. Hópurinn er þekktur fyrir borgaralega óhlýðni sína á mótmælum en tekur skýrt fram að hann er á móti ofbeldi af öllu tagi.
Í kjölfarið á umfjölluninni um Amherst þá hefur fylgjendum hennar á samfélagsmiðlinum Instagram fjölgað ört. Nokkrir hættu þó að fylgja henni á dögunum eftir að hún tilkynnti að hún væri byrjuð að selja aðgang að efni frá sér á hinni umdeildu vefsíðu, OnlyFans. Vinsælasta efnið á vefsíðunni er án efa klámfengið efni og eru margar klámstjörnur sem selja aðgang á sína síðu á vefsíðunni. Amherst þvertekur þó fyrir að vera sjálf klámstjarna.
„Ég missti nokkra fylgjendur íd ag svo ég er viss um að sumt fólk er óánægt með að ég sé með aðgang á þessari kynferðislegu síðu og ég afsaka það, ég vil ekki móðga neinn,“ segir Amherst í færslu sem hún birti á Instagram-síðu sinni á dögunum. Þá útskýrir Amherst að hún sé að nota síðuna til að safna pening fyrir samtök sem þurfa á peningnum að halda. „Ég er ekki að gera klám, þetta eru bara brjóst og nektarmyndir.“
View this post on Instagram