fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Virta karakterleikkonan fagnar brúðkaupsafmælinu á Íslandi

Máni Snær Þorláksson
Fimmtudaginn 5. ágúst 2021 15:20

Myndir/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hin virta karakterleikkona Margo Martindale er stödd á Íslandi. Hún fagnaði 35 ára brúðkaupsafmæli sínu með eiginmanni sínum William Boals á Snaps Bistro í gær. „35 ár og ennþá að telja. Elska þig Bill! Til hamingju með brúðkaupsafmælið,“ skrifaði Margo með mynd af sér og Bill sem hún birti á Instagram-síðu sinni í gær.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Margo Martindale (@margomartindale)

Þetta er þó ekki eina myndin frá Íslandi sem Margo er búin að birta á Instagram-síðu sinni. Í gær birti hún afar skemmtilega mynd af sér með óopinberan þjóðarrétt Íslendinga, pylsu með öllu. Svo virðist vera sem karakterleikkonan hafi fengið sér tvær pylsur í brauðið og sett á þær bæði remúlaði og sinnep. Líklega hefur hún fengið sér tómatsósu og annan laukinn eða jafnvel báða undir pylsurnar tvær.

 

View this post on Instagram

 

A post shared by Margo Martindale (@margomartindale)

Margo Martindale verður eflaust seint talin sem ein frægasta leikkona heims en hún er þó afar vinsæl í ákveðnum hópi, hópi þeirra sem hafa horft á Netflix-þættina Bojack Horseman. Þar leikur hún ýkta útgáfu af sjálfri sér og vakti það hlutverk hennar mikla lukku. Í þáttunum fékk hún titilinn „hin virta karakterleikkona“ (e. esteemed character actress). Margo hjálpaði aðalpersónu þáttana, Bojack, reglulega að framkvæma einhver svikabrögð og glæpi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Bríet kom vinkonu sinni rækilega á óvart með nýju hári – „Lít ég ekki út eins og ódýr hóra?“

Bríet kom vinkonu sinni rækilega á óvart með nýju hári – „Lít ég ekki út eins og ódýr hóra?“
Fókus
Í gær

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjáðu myndina: Katrín gerði það sama og Davíð – Er þetta gert að ráðum almannatengla?

Sjáðu myndina: Katrín gerði það sama og Davíð – Er þetta gert að ráðum almannatengla?
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti
Fókus
Fyrir 3 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hélt framhjá með tveimur yngri mönnum – Viðbrögð eiginmannsins komu á óvart

Hélt framhjá með tveimur yngri mönnum – Viðbrögð eiginmannsins komu á óvart
Fókus
Fyrir 3 dögum

Markle hneykslar enn á ný – Stal sviðsljósinu og sagði annarri að færa sig

Markle hneykslar enn á ný – Stal sviðsljósinu og sagði annarri að færa sig
Fókus
Fyrir 4 dögum

Íslendingar fljúga snemma úr hreiðrinu – Goðsögnin um ítölsku mömmustrákana er sönn

Íslendingar fljúga snemma úr hreiðrinu – Goðsögnin um ítölsku mömmustrákana er sönn
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“