Nú um verslunarmannahelgina hefði átt að fara fram Þjóðhátíð í Eyjum en henni er frestað annað árið í röð vegna samkomutakmarkanna. Þetta er verulegt áfall fyrir einhverja enda margir orðnir verulega spenntir eftir að hafa þurft að dúsa heima í fyrra.
Hörður Orri Grettisson, formaður Þjóðhátíðarnefndar, vill reyna að halda hátíðina seinna í sumar eða í haust en tilkynnt verður um það á næstu dögum. Það sætta sig þó ekki allir við það að mega ekki fara í Herjólfsdal.
Gerður hefur verið viðburður á Facebook sem ber nafnið „Storm Heimaey – Þau geta ekki stoppað okkur öll“ en þar er fólk hvatt til þess að storma inn í Herjólfsdal.
Í lýsingu viðburðarins stendur „Núna er kominn tími til að taka stöðu gegn illkvittnislegum aðgerðum ríkisstjórnar og minna á hver það eru sem raunverulega reka þetta land, almúginn. Sjáumst á Þjóðhátíð,“ en yfir 350 manns hafa sýnt viðburðinum áhuga.
Þetta minnir óneitanlega á það þegar gerður var viðburður á Facebook þess efnis að ráðast inn á Svæði 51 (e. Area 51) í Bandaríkjunum. Þar er Bandaríkjaher sagður geyma leyndarmál um tilvist geimvera. Milljónir manna sýndu viðburðinum áhuga og enduðu mál þannig að þúsundir mættu að svæðinu.
Það voru ekki margir sem reyndu þó að komast inn en spurning hvort fólk reyni að halda sína eigin Þjóðhátíð í Herjólfsdal um næstu helgi.