Söngkonan Britney Spears stendur í frelsisbaráttu. Hún var svipt sjálfræði fyrir 13 árum síðan eftir erfitt tímabil og var faðir hennar skipaður lögráðamaður hennar. Britney hefur nú barist fyrir því að endurheimta frelsið og endurheimta réttinn til að taka sjálfsagðar ákvarðanir um eigið líf og eigin peninga.
„Ég er hingað komin til að kæra. Ég er reið og ég ætla mér að gera þetta,“ sagði Britney í gegnum síma lögmanns síns í gær og vísaði til þess að hún vill að faðir sinn, Jamie Spears, verði rannsakaður en hún heldur því fram að hann hafi beitt hana harðræði og andlegu sem og fjárhagslegu ofbeldi.
Hún gaf þessa yfirlýsingu eftir að dómari í málinu úrskurðaði að Britney mætti sjálf velja sér lögmann til að gæta hagsmuna hennar í baráttu hennar.
Í kjölfarið birti söngkonan færslu á Instagram þar sem hún notaði í fyrsta sinn myllumerkið #freebritney sem aðdáendur hennar hafa notað um árabil til að vekja athygli á bágri stöðu hetjunnar sinnar.
„Nýjar vendingar – fékk alvöru málsvara í dag. Ég er þakklátt og auðmjúk. Sendi þakkir til aðdáenda minna sem hafa sutt mig. Þið hafið ekki hugmynd um hvað það skiptir mig miklu að fá stuðning frá svona dásamlegum aðdáendum. Guð blessi ykkur öll. Hér er ég að fagna með því að fara á hestbak og fara í handahlaup í dag. #FreeBritney“
Britney hefur valið sér lögmanninn Mathew S. Rosengart sem er mikils virtur í Hollywood og var áður saksóknari en búist er við að hann muni taka á málinu af mikilli hörku og fara fram á að Britney fái sjálfræðið aftur.
Margir höfðu furðað sig á ósanngirninni sem var fólgin í því að Britney væri nauðbeygð til að notast við lögmann sem lögráðamaður hennar samþykkti í máli til að fá sama lögráðamann settan af. Af augljósum ástæðum var talið að slíkur lögmaður bæri ekki hag Britney fyllilega fyrir brjósti.
Britney hefur haldið því fram að hún hafi verið neydd til að koma fram á tónleikum sem hún kærði sig ekki um, til að taka lyf sem hún vildi ekki taka og til að vera á getnaðarvörn þrátt fyrir að langa í fleiri börn.
Mathew Rosengart hefur kallað eftir því að faðir Britney, Jaime, segi af sér sem lögráðamaður þar sem það sé það besta í stöðunni fyrir dóttur hans.
„Ég og lögmannsstofan mín ætlum að komast til botns í því hvað hefur átt sér hér stað seinasta áratuginn,“ segir Rosengart.