fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Hooters-þjónustustúlka sýnir hvernig hún „stækkar“ brjóstin fyrir vakt

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Miðvikudaginn 30. júní 2021 10:30

Skjáskot/TikTok

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kirsten Songer, 22 ára, útskrifaðist nýlega úr háskóla í South Carolina í Bandaríkjunum og er að byrja í læknisfræði á næsta ári.

Kristen starfar einnig á veitingastaðnum Hooters og hefur verið að slá í gegn á TikTok nýlega. Í myndbandi á miðlinum sýnir hún hvernig hún getur látið brjóst sín virðast vera mikið stærri en þau raunverulega eru. Hún er í skálastærð A en lætur sig virðast vera í skálastærð D með þessari aðferð.

Hooters er stór veitingastaðakeðja í Bandaríkjunum sem gerir út á kynþokka kvenna og eru brjóst þar í aðalhlutverki. Aðeins konur starfa sem þjónar og klæðast flegnum bolum og stuttum stuttbuxum.

@theflathootersgirlSuper spy, catfish, same difference. ##super ##spy ##catfish ##hooters ##girls ##thehootersway ##server ##chest ##fy ##22♬ International Super Spy – Dylan 🧍🏻

Kirsten útskýrir aðferðina í myndbandinu hér að neðan. Hún notar brjóstahaldara með púðum frá Amazon. Undir hann setur hún svo kallaðan „sticky boobs“ sílikon brjóstahaldara undir. Hún setur síðan punktið yfir i-ið með því að setja sólapúður í kringum brjóstin.

@theflathootersgirlAnswer to @becky_rodzc this tutorial was definitely more rushed than my last one bc I’m late for work but hopefully y’all find this helpful! ##hooters♬ original sound – Kirsten 🙂

Kirsten viðurkennir að hún hefði verið smeyk um að brjóstin hennar væru of lítil þegar hún sótti fyrst um hjá Hooters.

„Ég hélt í alvöru að þeir myndu ekki ráða mig. Mig skortir það eina sem gerir vörumerkið að því sem það er,“ segir hún og bætir við að hún hefði ekki klæðst tveimur brjóstahöldurum fyrir viðtalið eins og allir sögðu henni að gera. En hún hins vegar klæddist víðri peysu.

„Það vilja margir kalla mig óörugga fyrir að láta brjóstin mín virðast stærri. Ég vil að fólk viti að ég geri þetta ekki því ég er óánægð með brjóstin mín eða útlit mitt. Ég geri þetta ekki utan vinnu. Ég geri þetta einungis til að fá meira þjórfé og þóknast viðskiptavinum mínum. Ég er opin með þetta á TikTok, það er ekki eins og ég sé að reyna að plata alla,“ segir hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar
Fókus
Fyrir 3 dögum

Harmsaga systkinanna Rakelar og Heimis – „Ég man eftir mömmu á þessum tíma, annað hvort öskrandi eða sofandi“

Harmsaga systkinanna Rakelar og Heimis – „Ég man eftir mömmu á þessum tíma, annað hvort öskrandi eða sofandi“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“