Anna Kristjánsdóttir, vélstjóri sem nú er komin á eftirlaun, segist vera í fýlu út í tryggingafélagið Sjóvá eftir að hún fékk tölvupóst þar sem bótakröfu hennar var hafnað. Anna býr á Tenerife en er stödd hér á landi þessa dagana.
Á dögunum greindi hún frá því að rándýrum Canon-linsum hennar hefði verið stolið úr geymslu hennar eftir að innbrotsþjófur braust þar inn. Þar sem geymslan er ekki innan íbúðar hennar var kröfunni hafnað.
„Ég get ekki sagt að ég hafi þakkað pent fyrir þetta svar, en sagði upp öllum tryggingum mínum hjá Sjóvá þegar í stað. Reyndar get ég ekki lokið uppsögninni fyrr en í dag þar sem ég er ekki með rafræn skilríki. Málinu er að sjálfsögðu ekki lokið þar sem ég hafði samband við Úrskurðarnefnd tryggingamála og mun vísa málinu þangað í dag,“ segir Anna í Facebook-færslu sem hún birti í morgun.
Anna segist alltaf hafa átt góð samskipti við starfsfólk Sjóvá þar til nú en nú sé hún einfaldlega komin í fýlu.