fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Vill láta eyða öllum klámmyndböndunum – „Ég myndi fórna öllu til að fá virðingu mína aftur“

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Föstudaginn 18. júní 2021 21:30

Mynd/Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lana Rhoades, 24 ára, er fyrrverandi klámstjarna og núverandi samfélagsmiðlastjarna. Hún nýtur einnig mikilla vinsælda á OnlyFans.

Lana er ötull talsmaður gegn klámiðnaðinum og greindi nýverið frá því hvað hefði verið „ógeðslegasta“ og erfiðasta atriði sem hún lék í á sínum tíma.

Sjá einnig: Vinsælasta klámstjarna Pornhub lýsir „ógeðslegasta atriðinu“ sem hún tók þátt í

Lana hætti í klámi árið 2018 og varð ári seinna vinsælasta klámstjarnan á PornHub vegna aukinna vinsælda sinna á samfélagsmiðlum.

Sér eftir kláminu

Lana var á dögunum í hlaðvarpsþættinum Tap In með Harry Jowsey. Hún sagðist óska þess að hún gæti farið til baka og eytt öllum myndböndunum sínum en því miður hefur hún ekki réttinn til þess.

Hún sagðist jafnframt sjá eftir því að hafa starfað í klámi. „Í fullri hreinskilni segi ég fólki að ef ég gæti farið til baka þá myndi ég fórna öllu til að fá virðingu mína aftur og svo að fólk geti ekki lengur séð mig á þennan hátt,“ sagði hún.

Sjáðu brot úr þættinum hér að neðan.

@wpeaceandluv#lanarhoades #harryjowsey #JDPassItOn #impaulsive #mikemajlak #fyp #foryoupage #foryou #trending #loganpaul

♬ original sound – :)<3

Mörg erfið atvik leiddu til þess að Lana ákvað að kveðja klámiðnaðinn, sem reyndist vera frábær ákvörðun bæði andlega og fjárhagslega séð.

„Þegar ég var í iðnaðinum græddi ég ekki skít,“ sagði hún í hlaðvarpsþættinum BFFs í síðustu viku. „Ég átti kannski tólf milljónir inni á bankabók þegar ég var í klámi en núna á ég mörg hundruð milljónir,“ sagði hún.

Lana nýtur mikilla vinsælda á Instagram og þénar allt að þrjár og hálfa milljón fyrir eina færslu. Hún er einnig með 25 þúsund áskrifendur á OnlyFans sem greiða mánaðarlegt gjald til að skoða efni frá henni, auk þess að margir borga aukalega til að fá meira efni.

„Svona kom ég mér út úr þessu, með því að deila á Instagram á hverjum degi. Ég varð vinsæl á Instagram og það var það sem gerði mig svona vinsæla á PornHub. Ég var ekki vinsælust þar þegar ég hætti í klámi.“

Lana vill vara ungar konur við að fara í klámiðnaðinn. „Þær halda að þetta sé mjög heillandi vinna [en það er það ekki]. Hún borgar ekki einu sinni almennilega,“ segir hún.

Lana á von á sínu fyrsta barni en hún greindi frá því á Instagram fyrr í mánuðinum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár
Fókus
Í gær

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 2 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 2 dögum

Alda vann til verðlauna annað árið í röð

Alda vann til verðlauna annað árið í röð
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi
Fókus
Fyrir 3 dögum

Kryddpíurnar með endurkomu í rosalegu fimmtugsafmæli Victoriu Beckham

Kryddpíurnar með endurkomu í rosalegu fimmtugsafmæli Victoriu Beckham
Fókus
Fyrir 4 dögum

Segir móður sína stórhættulega í umferðinni – „Hvernig get ég fengið mömmu til að hætta að keyra?“

Segir móður sína stórhættulega í umferðinni – „Hvernig get ég fengið mömmu til að hætta að keyra?“