Skúli Mogensen og Gríma Björg Thorarensen eiga von á sínu öðru barni. Fyrir eiga þau drenginn Jaka Skúlason.
Skúli er fyrrverandi forstjóri WOW air og Gríma er innanhússarkitekt. Hún starfaði áður sem flugfreyja hjá WOW air og prýddi kynningarefni flugfélagsins.
Gríma greindi frá gleðifregnunum á Facebook í gær.
„Litli strákurinn okkar er 1 árs í dag og allt í einu orðinn svo stór enda ætlar hann að verða stóri bróðir í september!“
Fókus óskar litlu fjölskyldunni innilega til hamingju.