Sjónvarps- og útvarpsmaðurinn Auðunn Blöndal og kærasta hans, Rakel Þormarsdóttir, eignuðust sitt annað barn í morgun.
„Það tók okkur 18 mánuði að verða vísitölufjölskylda“ skrifar Auðunn í færslu á Facebook-síðu sinni og segir hann bæði strákinn og móðurina heilsast vel.
Fyrir áttu þau saman soninn Theódór Sverri Blöndal en hann fæddist fyrir einu og hálfu ári síðan.
https://www.facebook.com/audunn.blondal/posts/10222836905845156