Lögreglan í Dubai hefur handtekið hóp af fólki vegna myndbands sem sýnir naktar konur í myndatöku á svölum um hábjartan dag. Þau sem eiga hlut að málinu hafa verið handtekin fyrir að særa blygðunarkennd manna með nektinni. Í Dubai getur það varðað allt að sex mánaða fangelsi auk sektar upp á 5.000 dirham eða um 170 þúsund íslenskar krónur. Breski fjölmiðillinn Metro er á meðal þeirra sem hafa greint frá málinu.
Myndbönd og myndir af athæfinu vöktu athygli á samfélagsmiðlum um helgina en í þeim má sjá fjölmargar konur standa naktar á svölunum í fínu hverfi í Dubai. Þá má einnig sjá mann taka myndir af nöktu konunum á svölunum.
Lögreglan í Dubai hefur greint frá því að málið sé á borði saksóknara. „Svona óásættanleg hegðun endurspeglar ekki gildi og siðferði í okkar samfélagi,“ segir í tilkynningu lögreglunnar um málið. Málið hefur vakið mikla athygli í Dubai, ekki síst þar sem fólk hefur endað í fangelsi fyrir mun minna.
Mikið hefur verið rætt um málin á samfélagsmiðlum en þar halda margir fram að um sé að ræða fyrirsætur. Þá hafa einhverjar kenningar verið á lofti um að konurnar hafi verið að taka erótískar myndir fyrir ísraelska klámsíðu.