Rétt fyrir klukkan níu í morgun mátti sjá bregða fyrir krúttlegum leynigesti á vefmyndavél RÚV við eldgosið í Geldingadölum í Fagradalsfjalli.
Áhorfendur streymisins sáu tófu á vappi. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem tófa sést í beinni á streyminu, hugsanlega er þetta sama tófan hér á ferð.
Horfðu á myndbandið hér að neðan.