fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Öskurgrét 9 ára gömul af því henni fannst hún of feit

Guðrún Ósk Guðjónsdóttir
Þriðjudaginn 9. mars 2021 09:35

Skjáskot/YouTube

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Erna Kristín Stefánsdóttir er guðfræðingur og samfélagsmiðlastjarna, sem hefur vakið mikla athygli fyrir skrif sín um líkamsímynd, er nýjasti gesturinn í Podcasti Sölva Tryggvasonar. Erna Kristín fer yfir sögu sína í þættinum:

„Við fermingaraldurinn vildi ég bara klippa magann af. Ég man eftir því að hafa hugsað það mjög mikið. Hvort það væri ekki bara hægt að klippa hann af. Þarna er komin mjög sterk hugmynd um að skaða mig og ég var mjög föst í að hugsa um að klippa mig með skærum. En það var alveg sama hvað ég svelti mig mikið, útlimirnir og aðrir hlutar líkamans grenntust alltaf á undan maganum. Það skipti engu máli þó að ég væri frekar grannur krakki og unglingur. Þetta elti mig í gegnum alla æskuna og unglingsárin. Ef ég ætlaði að komast heilan dag í viðbót án þess að borða horfði ég bara á Victoria Secret módelin og fann myndbönd af þeim til að finna kraftinn til að sleppa því að borða. En það var síðan eftir að mér var nauðgað sem átröskunin byrjaði fyrir alvöru og þá fór ég inn í langt tímabil af lotugræðgi (e. bulimia), þar sem ég skilaði matnum aftur upp úr mér alla daga. Átröskun er í grunninn leið til að skaða sig frá vondum tilfinningum og það gerðist þarna. Ég fór líka í mjög mikla ofþjálfun og æfði lengi vel ellefu sinnum í viku og ef eitthvað fór ofan í mig þá fór það aftur upp,“ segir Erna og heldur áfram.

„Ég var eiginlega með neikvæða líkamsímynd frá því að ég uppgötvaði að ég væri með líkama. Sem er auðvitað mjög sorglegt. Eitt sterkasta augnablikið var þegar ég var 9 ára og var að fara að keppa á fimleikamóti og fór inn á baðherbergi og öskurgrét af því að ég mátti ekki vera í stuttbuxum yfir fimleikabolnum. Þarna var þetta byrjað, en það að hugsa svona 9 ára er náttúrulega mjög óeðlilegt. Ég man að strax í fyrsta bekk var ég oft að hlaupa hring í kringum blokkina til að reyna að léttast. Þá er ég bara 6-7 ára gömul og þar er þetta strax byrjað. Hjá mér held ég að þetta tengist áfalli sem ég varð fyrir, sem getur sett átröskun af stað. En svo er alltaf spurning hversu stór vandinn verður. Hjá mér var ég föst í vítahring alveg þar til ég fékk ofsakvíðakast eftir að ég var orðin fullorðin og náði þá loks að byrja fyrir alvöru vegferðina að bata.“

Varð ólétt

Eitt af því sem hjálpaði Ernu út úr vítahring átröskunar var að verða ólétt.

„Ég var löngu hætt á blæðingum og fattaði þess vegna ekki að ég væri ólétt fyrr en ég var komin 3 mánuði á leið. Það hvarflaði ekki að mér að ég gæti orðið ólétt, en þegar það gerðist fór lífið að snúast um annað en bara mig. Það að átta mig á því að ég yrði að halda þessu kríli í lagi fékk mig til að byrja að borða aftur og byrjaði að laga átröskunina. En svo fór ég yfir í tímabil þar sem ég borðaði allt of mikið og ofbauð líkamanum aðeins í þá átt, vegna þess að líkaminn hafði verið svo lengi í svelti að hann öskraði stanslaust á mat. Þannig að það tók mig talsverðan tíma að finna jafnvægið og læra að hlusta á líkamann. En í dag er þetta komið á eðlilegt ról.“

Vinnur með börnum og unglingum

Erna vinnur mikið með börnum og unglingum og ræðir oft við þau um samfélagsmiðla og gildrurnar þar, sem hún þekkir sjálf af eigin raun.

„Samfélagsmiðlarnir geta verið rosalegir og ég þekki það sjálf að missa mig í þeim. Ég var að fara yfir þetta og ég er búin að fara í gegnum milljón myndbönd á Tik Tok. Það er hægt að sjá það í forritinu. Ég skammast mín fyrir að segja þetta. Í fullu háskólanámi, með barn og fleira.“

Í þættinum fara Sölvi og Erna yfir sögu Ernu, kosti og galla samfélagsmiðla og margt margt fleira.

Þáttinn í heild má sjá hér að neðan. Þú getur einnig hlustað á hann á Spotify.

https://www.youtube.com/watch?v=SFpN__5FqwQ

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 3 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“