Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, hæstaréttarlögmaður, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla sem hann lét falla í útvarpsþættinum Brennslunni, sem er á dagskrá FM957. Ljóst er að Vilhjálmur er að slá á létta strengi með yfirlýsingu sinni, þar sem hann skýtur meðal annars á Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra.
Vilhjálmur var gestur í þættinum í gær. Í svokallaðri skýrslutöku, sem snýst um að spyrja gesti fjölda spurninga, sagðist Vilhjálmur geta lyft 100 kílóum í bekkpressu. Vilhjálmur segist hafa haldið að hann mætti nota sömu aðferð og Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, sem birti myndband af sjálfum sér lyfta 120 kílóum eftir sömu spurningu í sama útvarpsþætti.
Lyfta ráðherra vakti mikla athygli, en margir bentu á að hans aðferð væri ekki í samræmi við reglur Alþjóða Kraftlyftingasambandsins.
Vilhjálmur virðist hafa fengið að heyra af því eftir þáttinn, og ákvað því að reyna við bekkpressuna með réttri aðferð. Niðurstaðan var sú að hann gat lyft 80 kílóum, en ekki 100.
Hann segir að mistök þessi verði sér hvatning og ætlar hann sér að ná 100 kílóum í sumarbyrjun. Yfirlýsingin endar á tilvitnun í einn virtasta lögmann Bandaríkjanna, Denny Crane, sem sagði: „Never lost, never will.“
Yfirlýsingu Vilhjálms má lesa hér að neðan, sem hann sendi upphaflega í Brennsluna til upplesturs.