Árni Björn Kristjánsson, íþróttamaður og fjölskyldufaðir, opnar sig um líkamsímynd í færslu á Instagram sem hefur vakið töluverða athygli.
Tæplega sjö hundruð manns hafa líkað við færsluna og fjöldi fólks deilt henni áfram. Það er greinilegt að mörgum þykir vera kominn tími til og mikilvægt að opna umræðu um líkamsímynd karla. „Vel skrifað, þörf umræða,“ segir einn netverji.
„Þetta er svo mikilvæg umræða,“ segir annar. Fjallað er um færsluna með góðfúslegu leyfi Árna Björns.
View this post on Instagram
Árni Björn segir að hann hafi ákveðið að tjá sig um þetta málefni eftir að hafa séð Instagram Story hjá Karlmennskan.
„Ég fékk loksins kjark til að ræða málefni sem hefur lengi legið mér á hjarta en það er jákvæð líkamsímynd karla. Þessi umræða hefur verið í gangi að undanförnu en persónulega hef ég bara tekið eftir þessari umræðu hjá konum og ég hugsaði alltaf með mér hvað ég tengdi við þetta,“ segir Árni Björn.
Árni Björn æfir CrossFit og er stöðvastjóri CrossFit XY. „Þó svo að ég hafi verið að keppa í íþrótt þar sem útlit skipti engu máli heldur bara frammistaða þá var ég alltaf sjúklega meðvitaður um að ég leit ekki út eins og strákarnir sem ég var að keppa við. Þeir sem hafa fylgst með CrossFit vita að þeir sem eru á hæsta „leveli“ líta flestir ú teins og einhver grísk goð og það er búið að stimpla því í hausinn á manni í gegnum lífið að skorinn og meitlaður líkami sé það allra flottasta. Síðan með tilkomu samfélagsmiðla, þar sem endalaus samanburður á sér stað þá verður þetta enn erfiðara.“
„Strákar eru líka með vandamál og komplexa. Það eru allir að kljást við eitthvað og það sem skiptir öllu máli er hvernig við sjálfir lítum á okkur og hvernig við komum fram við okkur sjálfa,“ segir hann og útskýrir nánar.
„Ef ég sé karlmann í yfirþyngd þá dæmi ég hann ekki, því ég hef verið þar. Ef ég hins vegar fer í frí frá æfingum og þyngist um tvö kíló þá hata ég sjálfan mig. Það er SVO óeðlilegt!“
Árni Björn hvetur karlmenn til að læra að elska sig sjálfa. „Þá fyrst er hægt að byrja uppbyggingu og stöðva endalaust niðurrif. Við þurfum að læra að allir eru mismunandi og með mismunandi vandamál og mismunandi markmið. Það sem skiptir öllu máli er að elska okkur sjálfa og vita að alls konar útlit er sexy!“
Eins og fyrr segir hafa skrif Árna Björns vakið mikla athygli og hafa netverjar hrósað honum hástert fyrir að opna umræðuna. „Vel skrifað, þörf umræða,“ segir einn netverji.
„Þetta er svo mikilvæg umræða,“ segir annar.
View this post on Instagram