fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fókus

Rakst á systur sína í kynsvalli

Fókus
Þriðjudaginn 7. desember 2021 22:00

Mynd/iStock

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fertugur karlmaður er ráðalaus eftir að hann rakst á systur sína á stað þar sem þú vilt alls ekki hitta skyldmenni.

„Ég sá systur mína í kynsvalli og núna eru hlutirnir skrýtnir á milli okkar. Ég er 40 ára og eiginkona mín er 38 ára. Við erum í opnu sambandi og förum reglulega í kynlífspartý,“ segir hann í bréfi sínu til Dear Deidre, kynlífs- og sambandsráðgjafa The Sun.

„Við höfðum saknað þess að fara í slík partý þegar takmarkanir voru vegna Covid en nú er byrjað að halda svona viðburði aftur. Í síðasta mánuði fórum við hjónin í partý með nokkrum swinger-vinum okkar.“

Maðurinn lýsir svo atvikinu sem hann langar helst að gleyma. „Seinna um kvöldið gekk ég inn í herbergi og sá mjög aðlaðandi konu stunda kynlíf með tveimur karlmönnum. Mér til skelfingar sá ég að þessi kona var systir mín, sem er 36 ára. Ég er ekki viss hvort hún hafi séð mig,“ segir hann.

„Ég hljóp út úr herberginu, fann eiginkonu mína og við fórum beint heim. Ég hef ekki talað við systur mína síðan. Ég veit ekki hvort ég muni einhvern tíma geta horft framan í hana aftur.“

Deidre svarar manninum. 

„Æskan okkar hefur oft áhrif á kynlífshegðun okkar þannig það kemur kannski ekki á óvart að systir þín deilir áhuga þínum á orgíum. Þú ættir að láta eins og þú hafir ekki séð hana og reyndu að hegða þér eðlilega í kringum hana. En ef þetta er að trufla þig þá þarftu kannski að segja eitthvað. Þú getur prófað að senda henni skilaboð og spurt hvort hún vilji hittast í drykk til að spjalla,“ segir hún.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Maður þarf stundum að standa með sjálfum sér“

„Maður þarf stundum að standa með sjálfum sér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sigríður lýsir lækningamætti Einars – „Gleymi aldrei svipnum á læknunum þegar þeir skoðuðu nýjar myndir af hnénu“

Sigríður lýsir lækningamætti Einars – „Gleymi aldrei svipnum á læknunum þegar þeir skoðuðu nýjar myndir af hnénu“